Bæta á þjónustu við fólk með geðrænan vanda

Samfélagsmál | 19. maí 2021

Bæta á þjónustu við fólk með geðrænan vanda

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur falið Landspítala að efna til vinnustofu um þjónustuferla með það að markmiði að bæta þjónustu við fólk með geðrænan vanda, auka skilvirkni hennar og draga úr biðlistum.

Bæta á þjónustu við fólk með geðrænan vanda

Samfélagsmál | 19. maí 2021

Geðdeild Landspítalans.
Geðdeild Landspítalans. mbl.is/​Hari

Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra hef­ur falið Land­spít­ala að efna til vinnu­stofu um þjón­ustu­ferla með það að mark­miði að bæta þjón­ustu við fólk með geðræn­an vanda, auka skil­virkni henn­ar og draga úr biðlist­um.

Svandís Svavars­dótt­ir heil­brigðisráðherra hef­ur falið Land­spít­ala að efna til vinnu­stofu um þjón­ustu­ferla með það að mark­miði að bæta þjón­ustu við fólk með geðræn­an vanda, auka skil­virkni henn­ar og draga úr biðlist­um.

Til vinnu­stof­unn­ar verða boðaðir full­trú­ar allra veit­enda geðheil­brigðisþjón­ustu á fyrsta, öðru og þriðja stigi heil­brigðisþjón­ustu sem og full­trú­ar not­enda. Megin­áhersla verður lögð á að finna leiðir til að tryggja sam­vinnu milli þjón­ustu­stiga og þjón­ustu­veit­enda, auk þess sem hlut­verk ein­stakra þjón­ustu­ein­inga verða skil­greind. Miðað er við að afrakst­ur vinnu­stof­unn­ar verði til­lög­ur til úr­bóta á þessu sviði sem skilað verði til ráðherra um miðjan ág­úst. Vinnu­stof­an verður hald­in und­ir for­merkj­un­um Rétt geðheil­brigðisþjón­usta á rétt­um stað með skýr­skot­un í mark­mið heil­brigðis­stefnu til árs­ins 2030. Þetta kem­ur fram á vef heil­brigðisráðuneyt­is­ins. 

Heil­brigðisráðherra stóð fyr­ir geðheil­brigðisþingi í des­em­ber á liðnu ári þar sem unnið var að mót­un framtíðar­sýn­ar í geðheil­brigðisþjón­ustu til árs­ins 2030. „Þar komu fram skýr­ar ábend­ing­ar um að skil­greina þurfi og sam­ein­ast um heild­stæðan þjón­ustu­fer­il þar sem öll þrjú þjón­ustu­stig geðheil­brigðisþjón­ustu væru samþætt og ynnu sam­an að því að tryggja not­end­um og fjöl­skyld­um þeirra sam­fellda og skil­virka þjón­ustu.

Til að tryggja að raun­veru­leg­ar úr­bæt­ur nái fram að ganga er mik­il­vægt að veit­end­ur og not­end­ur geðheil­brigðisþjón­ustu komi sam­an að því að rýna þjón­ust­una og vinna að mik­il­vægu breyt­inga­ferli frá upp­hafi.“

Land­spít­ali hef­ur á að skipa sér­hæfðum verk­efna­stjór­um sem búa yfir mik­illi reynslu og hafa leitt ýmis upp­bygg­ing­ar- og um­bóta­verk­efni sem tengj­ast bætt­um þjón­ustu­ferl­um inn­an spít­al­ans og einnig upp­bygg­ingu og skipu­lagi nýs sjúkra­húss að því er seg­ir í til­kynn­ingu á vef ráðuneyt­is­ins.

„Í þessu ljósi var ákveðið að fela Land­spít­al­an­um skipu­lagn­ingu og ut­an­um­hald vinnu­stof­unn­ar en áhersla verður lögð á að not­end­ur sem og all­ir þjón­ustu­veit­end­ur eigi fulla aðkomu að verk­efn­inu og taki virk­an þátt í því. Heil­brigðisráðherra hef­ur veitt Land­spít­ala 500.000 króna til verk­efn­is­ins.“

mbl.is