Krefur andstæðing sinn um bætur

Tyrkland | 20. maí 2021

Krefur andstæðing sinn um bætur

Forseti Tyrklands Recep Tayyip Erdogan hefur höfðað mál gegn sínum helsta pólitíska andstæðing vegna ummæla hennar þar sem hún bar Erdogan saman við Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. 

Krefur andstæðing sinn um bætur

Tyrkland | 20. maí 2021

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands.
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands. AFP

For­seti Tyrk­lands Recep Tayyip Er­dog­an hef­ur höfðað mál gegn sín­um helsta póli­tíska and­stæðing vegna um­mæla henn­ar þar sem hún bar Er­dog­an sam­an við Benjam­in Net­anja­hú for­sæt­is­ráðherra Ísra­els. 

For­seti Tyrk­lands Recep Tayyip Er­dog­an hef­ur höfðað mál gegn sín­um helsta póli­tíska and­stæðing vegna um­mæla henn­ar þar sem hún bar Er­dog­an sam­an við Benjam­in Net­anja­hú for­sæt­is­ráðherra Ísra­els. 

Mer­al Ak­sener, sem er þjóðern­is­sinnuð íhaldskona og leiðtogi Iyi flokks­ins (e. Good Party), sagði á tyrk­neska þing­inu á þriðju­dag að Net­anja­hú og Er­dog­an noti svipaðar aðferðir til að halda í völd sín. Hún sagði að her­ferð Net­anja­hú gegn palestínsk­um víga­hóp­um á Gaza-svæðinu, sem Er­dog­an hef­ur gagn­rýnt harðlega, sé drif­in áfram af stjórn­mál­um og vilja for­sæt­is­ráðherr­ans til að auka stuðning sinn hjá kjós­end­um í kjöl­far fjög­urra ófull­nægj­andi kosn­inga á tveim­ur árum. 

Á miðviku­dags­kvöld sagði Er­dog­an að um­mæli Ak­senser hafi verið „ósiðleg“. 

„Ég hef aldrei hitt Net­anja­hú. Net­anja­hú hef­ur aldrei og verður aldrei vin­ur okk­ar,“ sagði for­set­inn. 

Í stefnu sinni krefst Er­dog­an því sem jafn­gild­ir rúm­lega 3,5 millj­ón­um króna í bæt­ur fyr­ir um­mæli Ak­senser. 

Afstaða Er­dog­an gagn­vart hernaðaraðgerðum Ísra­el hef­ur verið gagn­rýnd af Sam­einuðu þjóðunum, sem sak­ar for­set­ann um gyðinga­hat­ur. Stuðning­ur Er­dog­an við Palestínu hef­ur aft­ur á móti aukið vin­sæld­ir hans á Miðaust­ur­lönd­um. Í sjón­varpaðri ræðu fyrr í vik­unni varði for­set­inn um­mæli sín í garð Ísra­el: 

„Ef við þurf­um að gjalda fyr­ir það... að standa með hinum sak­lausu, við mun­um aldrei hika við að greiða það gjald,“ sagði hann. 

mbl.is