Þyngri og vöðvastæltari

Líkamsrækt stjarnanna | 25. júlí 2021

Þyngri og vöðvastæltari

Leikarinn Dax Shepard er mjög vöðvastæltur. Hann bætti á sig rúmlega tíu kílóum af vöðvum meðan á útgöngubanni stóð. Hann hætti að bíða eftir ofurhetjuhlutverkinu og tók málin í eigin hendur.

Þyngri og vöðvastæltari

Líkamsrækt stjarnanna | 25. júlí 2021

Leikarahjónin Dax Shepard og Kristen Bell. Shepard bætti á sig …
Leikarahjónin Dax Shepard og Kristen Bell. Shepard bætti á sig vöðvum í kórónuveirufaraldrinum. AFP

Leik­ar­inn Dax Shep­ard er mjög vöðvastælt­ur. Hann bætti á sig rúm­lega tíu kíló­um af vöðvum meðan á út­göngu­banni stóð. Hann hætti að bíða eft­ir of­ur­hetju­hlut­verk­inu og tók mál­in í eig­in hend­ur.

Leik­ar­inn Dax Shep­ard er mjög vöðvastælt­ur. Hann bætti á sig rúm­lega tíu kíló­um af vöðvum meðan á út­göngu­banni stóð. Hann hætti að bíða eft­ir of­ur­hetju­hlut­verk­inu og tók mál­in í eig­in hend­ur.

„Ég hef beðið eft­ir að Mar­vel hringdi í tíu ár til þess að verða risa­stór,“ sagði Shep­ard við eig­in­konu sína í út­göngu­bann­inu. Hann greindi frá þessu í hlaðvarpsþætti sín­um Armchair Expert. „Og þeir eru ekki að fara hringja. Skipið er farið úr höfn. Ég er 46 ára, þeir eru ekki að fara að hringja. Ég verð bara að gera þetta fyr­ir mína eig­in ánægju.“

Hann greindi síðan frá því að hann hefði bætt rúm­lega tíu kíló­um af vöðvum á sig. Hann er nú orðinn 95 kíló. Hann æfði sex sinn­um í viku, lyfti þung­um lóðum og drakk pró­tíndrykki. „Ég var allt mitt líf bara venju­leg­ur strák­ur,“ sagði Shep­ard. „En nú er ég stór strák­ur og ég kann vel við það.“

Shep­ard, sem glím­ir við fíkni­vanda, mis­steig sig í fyrra. Hann seg­ir æf­ing­arn­ar ekki bara hjálpa sér lík­am­lega held­ur líka and­lega í glím­unni við fallið í fyrra.

Dax Shepard og Kristen Bell.
Dax Shep­ard og Kristen Bell. AFP
mbl.is