Brim, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands, hefur selt frystitogarann Höfrung III AK-250 til Rússlands og verður skipið afhent nýjum eigendum í september.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem félagið er skráð.
Þar segir að kaupandi skipsins sé Andeg Fishing Collective í Murmansk og er söluverð 5 milljónir bandaríkjadala.
Höfrungur var smíðaður í Noregi árið 1988, 56 metra langur, 1.521 brúttótonn.
Félagið hefur svo keypt skipið Iivid af Arctic Prime Fisheries á Grænlandi fyrir 58 milljónir danskra króna.
Iivid var smíðaður í Noregi árið 1999 og er 67 metra langur og 1.969 brúttótonn. Áætlað er að Iivid muni koma í flota félagsins í lok ágústmánaðar og mun fá nafnið Svanur RE-45.
Þá var nýlega greint frá því að Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hafi fest kaup á frystitogaranum Tasermiut sem var áður í eigu Arctic Prime Fisheries á Grænlandi, sem hlotið hefur nýja nafnið Sólborg RE-27.
Arctic Prime fisheries er að hluta til í eigu Brims og ÚR sem eiga hvor sinn 16,5 prósent hlutinn í grænlensku útgerðinni.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim hf. er einnig í stjórn Arctic Prime Fisheries.