Hótunarbréf kæmi ekki á óvart

Netárásir | 12. september 2021

Hótunarbréf kæmi ekki á óvart

Þeim þremur íslensku fjármálafyrirtækjum sem urðu fyrir netárásum í gær bárust ekki hótunarbréf fyrir árásina. Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, segir að það kæmi ekki á óvart ef slíkt bréf bærist á næstu dögum.

Hótunarbréf kæmi ekki á óvart

Netárásir | 12. september 2021

Þeim þrem­ur ís­lensku fjár­mála­fyr­ir­tækj­um sem urðu fyr­ir netárás­um í gær bár­ust ekki hót­un­ar­bréf fyr­ir árás­ina. Har­ald­ur Guðni Eiðsson, for­stöðumaður sam­skipta­sviðs Ari­on banka, seg­ir að það kæmi ekki á óvart ef slíkt bréf bær­ist á næstu dög­um.

Þeim þrem­ur ís­lensku fjár­mála­fyr­ir­tækj­um sem urðu fyr­ir netárás­um í gær bár­ust ekki hót­un­ar­bréf fyr­ir árás­ina. Har­ald­ur Guðni Eiðsson, for­stöðumaður sam­skipta­sviðs Ari­on banka, seg­ir að það kæmi ekki á óvart ef slíkt bréf bær­ist á næstu dög­um.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Salt­Pay bend­ir ekk­ert til þess að árás­inni í gær hafi sér­stak­lega verið beint að þeim. Hið sama megi segja um árás­ina sem fyr­ir­tækið varð fyr­ir í síðustu viku.

Þeim hafi held­ur verið beint að þjón­ustuaðilum þeirra. Þá tel­ur fyr­ir­tækið ekk­ert benda til þess að árás­irn­ar tvær séu tengd­ar.

Mark­miðið greint

Ekki er vitað hvert mark­mið árás­ar­inn­ar var en nú er unnið með eft­ir­litsaðilum að því að greina það, seg­ir Her­dís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Valitor, í sam­tali við mbl.is. 

Árás­in er enn frem­ur til skoðunar hjá Seðlabank­an­um.

„Starfs­fólk Seðlabanka Íslands hef­ur fylgst með þessu at­viki og fer svo nán­ar yfir það,“ seg­ir í skrif­legu svari frá Seðlabank­an­um.

Ekki vitað um önn­ur fórna­lömb

„Lands­bank­inn varð ekki fyr­ir þess­um árás­um en það gæti verið að hún hafi haft áhrif á viðskipta­vini bank­ans þar sem að þeir eru með kort út­gef­in af Valitor,“ seg­ir Rún­ar Pálma­son upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ann í sam­tali við mbl.is.

mbl.is