„Gögnin eru enn í frosti“

Netárásir | 11. október 2021

„Gögnin eru enn í frosti“

Fyrirtækið Geislatækni, sem varð fyrir árás tölvuþrjóta 23. september síðastliðinn, er orðið starfhæft að nýju. Enn hefur þó ekki tekist að endurheimta þau gögn sem „sett voru í frost“. Þetta segir Grétar Jónsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins í samtali við mbl.is.

„Gögnin eru enn í frosti“

Netárásir | 11. október 2021

Gögnin eru enn í frosti í kjölfar netárásar á hendur …
Gögnin eru enn í frosti í kjölfar netárásar á hendur fyrirtækisins Geislatækni. AFP

Fyr­ir­tækið Geisla­tækni, sem varð fyr­ir árás tölvuþrjóta 23. sept­em­ber síðastliðinn, er orðið starf­hæft að nýju. Enn hef­ur þó ekki tek­ist að end­ur­heimta þau gögn sem „sett voru í frost“. Þetta seg­ir Grét­ar Jóns­son fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í sam­tali við mbl.is.

Fyr­ir­tækið Geisla­tækni, sem varð fyr­ir árás tölvuþrjóta 23. sept­em­ber síðastliðinn, er orðið starf­hæft að nýju. Enn hef­ur þó ekki tek­ist að end­ur­heimta þau gögn sem „sett voru í frost“. Þetta seg­ir Grét­ar Jóns­son fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í sam­tali við mbl.is.

„Gögn­in eru enn í frosti, ef svo má segja. Ég er samt nokkuð bjart­sýnn á að það tak­ist að end­ur­heimta þau að lok­um. Að minnsta kosti eru þeir aðilar sem eru að vinna í þessu fyr­ir okk­ur nokkuð bjart­sýn­ir en þetta gæti tekið nokkr­ar vik­ur,“ seg­ir Grét­ar.

Ekki er búið að taka sam­an end­an­legt fjár­hags­legt tjón Geisla­tækni vegna árás­ar­inn­ar, enda mál­inu í raun ekki lokið. Grét­ar seg­ist þó nokkuð viss um að það sé á þriðja tug millj­óna.

Læra þarf af þessu

Spurður hvað hefði mátt fara bet­ur seg­ir Grét­ar það að sjálf­sögðu í skoðun. Ein­kenni­legt sé að af­rit af gögn­un­um hafi horfið líka. „Aðil­inn sem er að þjón­usta okk­ur með þessi af­rit hef­ur ekki lent í þessu áður. Svo veit maður ekki enn rétt­ar­stöðu sína gagn­vart þeim aðila.“

Hann seg­ir þá ljóst að hægt sé að læra af þessu. Ljóst sé að fyr­ir­tæki þurfi að bera ábyrgð og passa sig að ein­hverju leyti sjálf. Mik­il­vægt sé að eiga til aðgerðaáætl­un sem hægt sé að grípa til komi til árás­ar.

Rúm vika í stað eins dags

Hann seg­ir þessa umræðu hafa verið tekna inn­an­húss hjá sér fyr­ir um tveim­ur árum og var gert ráð fyr­ir því að það tæki um einn dag að verða starf­hæf­ir á ný.

„Sú varð að lok­um ekki raun­in, enda tók það okk­ur rúma viku að kom­ast í gang. Svo er þetta nátt­úru­lega aðeins hökt­andi vegna þess að við þurft­um að setja upp öll for­rit að nýju til dæm­is.“

Grét­ar seg­ist einnig finna fyr­ir ákveðinni hræðslu meðal rekstr­araðila vegna stöðunn­ar. Fyr­ir­tæk­in verði að passa sig sjálf og hafa eft­ir­lit með eft­ir­lit­inu og vís­ar þar til af­rit­anna sem hurfu einnig.

„Maður heyr­ir það að það er skjálfti í mönn­um. Menn eru að fara yfir sín mál og taka ferl­ana í gegn. Það er of oft tel ég verið að ein­blína á vél­búnað. Aðal­verðmæt­in liggja í gögn­un­um, ekki í vél­búnaði.“

mbl.is