Kom ekki til greina að borga gjaldið

Netárásir | 18. október 2021

Kom ekki til greina að borga gjaldið

Unnið er að því að finna út hvað fór úrskeiðis í netöryggiskerfi Háskólans í Reykjavík eftir að skólinn sætti netárás í síðustu viku. Þetta segir Ragnhildur Helgadóttir rektor í samtali við mbl.is.

Kom ekki til greina að borga gjaldið

Netárásir | 18. október 2021

Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík. Ljósmynd/Aðsend

Unnið er að því að finna út hvað fór úr­skeiðis í netör­yggis­kerfi Há­skól­ans í Reykja­vík eft­ir að skól­inn sætti netárás í síðustu viku. Þetta seg­ir Ragn­hild­ur Helga­dótt­ir rektor í sam­tali við mbl.is.

Unnið er að því að finna út hvað fór úr­skeiðis í netör­yggis­kerfi Há­skól­ans í Reykja­vík eft­ir að skól­inn sætti netárás í síðustu viku. Þetta seg­ir Ragn­hild­ur Helga­dótt­ir rektor í sam­tali við mbl.is.

Fylgja ráðlegg­ing­um fag­manna

Hún seg­ir ólík­legt að tölvuþrjót­arn­ir hafi náð að af­rita gögn en þó sé ekki hægt að úti­loka það. 

Spurð hvort starfs­fólk skól­ans sé óánægt með að skól­inn hafi ekki borgað lausn­ar­gjaldið seg­ist Ragn­hild­ur ekki hafa orðið vör við það. Starfs­fólk hafi spurt hvort þau hafi hugsað um að borga gjaldið og seg­ir Ragn­hild­ur að það hafi ekki komið til greina. 

„Það eru ein­dreg­in til­mæli lög­reglu og tölvu­ör­ygg­is­fyr­ir­tækja, til þeirra sem verða fyr­ir svona glæp­um, að borga ekki og vera ekki í sam­skipt­um við þá sem láta svona. Í öðru lagi myndi það senda band­vit­laus skila­boð og ýta und­ir svona glæpi hefðum við greitt þetta. Í þriðja lagi ef, sem við vit­um ekki og þykir ólík­legt, það eru af­rit af tölvu­póst­um þá hverfa þau ekki sjálf­krafa við það að við borg­um.“

Ekki í full­komnu standi

Ragn­hild­ur seg­ir að nú sé verið að skoða hvað gerðist, í sam­ráði við netör­ygg­is­fyr­ir­tæki, og svo verði gerðar nauðsyn­leg­ar úr­bæt­ur á netör­ygg­is­mál­um skól­ans.

Við vit­um að það var nýtt­ur veik­leiki á póstþjóni okk­ar. Þó er okkur sagt að við séum með þetta í nokkuð góðu standi en við erum klár­lega ekki með þetta í full­komnu standi – ann­ars hefði þetta ekki gerst. Það má alltaf gera bet­ur.“

mbl.is