Svigrúm er til að bregðast við gosi

Hekla | 5. nóvember 2021

Svigrúm er til að bregðast við gosi

„Niðurstaða áhættumats er að það sé nægur tími fyrir okkur í Flugstjórnarmiðstöðinni til að bregðast við á réttan hátt og halda uppi öryggi verði eldgos. Við sem sérfræðingar höfum ekki áhyggjur af þessu,“ segir Árni Guðbrandsson, sérfræðingur hjá Isavia ANS. Það er dótturfyrirtæki Isavia ohf. og annast flugleiðsöguhlutann innan samstæðunnar. 

Svigrúm er til að bregðast við gosi

Hekla | 5. nóvember 2021

Einn af hnitpunktunum sem notaðir eru í flugi er nálægt …
Einn af hnitpunktunum sem notaðir eru í flugi er nálægt Heklu.

„Niðurstaða áhættumats er að það sé næg­ur tími fyr­ir okk­ur í Flug­stjórn­ar­miðstöðinni til að bregðast við á rétt­an hátt og halda uppi ör­yggi verði eld­gos. Við sem sér­fræðing­ar höf­um ekki áhyggj­ur af þessu,“ seg­ir Árni Guðbrands­son, sér­fræðing­ur hjá Isa­via ANS. Það er dótt­ur­fyr­ir­tæki Isa­via ohf. og ann­ast flug­leiðsögu­hlut­ann inn­an sam­stæðunn­ar. 

„Niðurstaða áhættumats er að það sé næg­ur tími fyr­ir okk­ur í Flug­stjórn­ar­miðstöðinni til að bregðast við á rétt­an hátt og halda uppi ör­yggi verði eld­gos. Við sem sér­fræðing­ar höf­um ekki áhyggj­ur af þessu,“ seg­ir Árni Guðbrands­son, sér­fræðing­ur hjá Isa­via ANS. Það er dótt­ur­fyr­ir­tæki Isa­via ohf. og ann­ast flug­leiðsögu­hlut­ann inn­an sam­stæðunn­ar. 

Þetta kem­ur fram í Morg­un­blaðinu í dag.

Páll Ein­ars­son, jarðeðlis­fræðing­ur og pró­fess­or em­er­ít­us, hef­ur lýst yfir áhyggj­um sín­um af því að farþega­flugi sé beint yfir Heklu því hún geti gosið með mjög skömm­um fyr­ir­vara. Hann seg­ir stutt­an fyr­ir­vara á Heklugos­um gera hana að vara­sömu eld­fjalli.

„Það sem Páll vís­ar í eru hnit jarðar­inn­ar og hnit­punkt­ur­inn 64°N og 20°W. Flug sem fara yfir hafið fljúga mikið eft­ir svona hnit­um og þar á meðal er þessi punkt­ur oft notaður,“ seg­ir Árni. Punkt­ur þessi er rétt við Leiru­bakka í Landsveit sem er í næsta ná­grenni eld­fjalls­ins Heklu. Árni seg­ir að það fari eft­ir vind­um í háloft­un­um hvort marg­ar flug­vél­ar leggi leið sína yfir þenn­an hnit­punkt hverju sinni. Hann bend­ir á að farþega­flug­vél­ar fljúgi á tæp­lega 900 km hraða á klukku­stund og séu því fljót­ar að bregðast við skap­ist ein­hver hætta.

Isa­via ANS gerði áhættumat árið 2016 í sam­vinnu við nátt­úru­vár­deild Veður­stofu Íslands. Áhættumatið heit­ir „Mögu­leg áhrif af eld­gosi í Heklu með skömm­um fyr­ir­vara.“ Árni seg­ir að sam­kvæmt áhættumat­inu sé ekki tal­in þörf á að gera nein­ar breyt­ing­ar á flug­ferl­um eða flug­hnit­um vegna farþega­flugs yfir hafið og mögu­legr­ar vár vegna eld­goss á Íslandi.

mbl.is