Hættan á að stinga sig á nálum mjög ýkt

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 21. desember 2021

Hættan á að stinga sig á nálum mjög ýkt

„Það er auðvitað hætta á að stinga sig á nál sem að þú finnur en hún er mjög ýkt,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir, forstöðukona Konukots um áhættuna við nálar sem kunna að finnast á víðavangi sem jafnvel hafa verið notaðar til vímuefnaneyslu í æð. 

Hættan á að stinga sig á nálum mjög ýkt

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 21. desember 2021

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „Það er auðvitað hætta á að stinga sig á nál sem að þú finn­ur en hún er mjög ýkt,“ seg­ir Hall­dóra Guðmunds­dótt­ir, for­stöðukona Konu­kots um áhætt­una við nál­ar sem kunna að finn­ast á víðavangi sem jafn­vel hafa verið notaðar til vímu­efna­neyslu í æð. 

    „Það er auðvitað hætta á að stinga sig á nál sem að þú finn­ur en hún er mjög ýkt,“ seg­ir Hall­dóra Guðmunds­dótt­ir, for­stöðukona Konu­kots um áhætt­una við nál­ar sem kunna að finn­ast á víðavangi sem jafn­vel hafa verið notaðar til vímu­efna­neyslu í æð. 

    Konu­kot er neyðar­skýli fyr­ir heim­il­is­laus­ar kon­ur, marg­ar kon­ur sem leita þangað eru í þungri fíkni­efna­neyslu og nota fíkni­efni í æð. Nál­ar sem notaðar hafa verið í slíka neyslu valda oft hræðslu. 

    Hall­dóra seg­ir að þegar fólk smit­ast af sjúk­dóm­um af notuðum nál­um sé um upp­safnaðar lík­ur að ræða. „Það þarf að vera frek­ar fersk nál og þeir sem eru að smit­ast af ein­hverju af notuðum nál­um, þetta eru yf­ir­leitt upp­safnaðar lík­ur. Ítrekað notaður sami búnaður­inn,“ seg­ir Hall­dóra. 

    Heim­il­is­leysi, skaðam­innk­un og nála­skiptaþjón­usta 

    Hall­dóra er gest­ur Karítas­ar Rík­h­arðsdótt­ur í Dag­mál­um þar sem hún fer yfir starf­semi Konu­kots og aðstæður þeirra kvenna sem þangað leita, jól­in í kot­inu, skaðam­innk­andi hug­mynda­fræði og margt fleira. 

    Hún bend­ir á að þegar fólk sem er í neyslu er heim­il­is­laust er lík­legra að búnaður á borð við nál­ar og spraut­ur sé skil­inn eft­ir á víðavangi. „Ef að það er flott skaðam­innk­andi þjón­usta þá er verið að farga þess­um nál­um. Það er verið að passa upp á að hafa yf­ir­sýn yfir þetta og heim­il­is­leysi veld­ur því oft að fólk er að nota úti. En ef fólk er með heim­ili þá er það yf­ir­leitt mjög ábyrgt í þessu,“ út­skýr­ir Hall­dóra. 

    Skaðam­innk­un­arþjón­ust­an Frú Ragn­heiður sæk­ir og farg­ar nála­boxum og nál­um. Fólk sem að verður vart við nál­ar get­ur ým­ist óskað eft­ir að þær séu sótt­ar, hent þeim sjálft ef það er hetta á þeim eða komið í nála­box sem er til dæm­is að finna fyr­ir utan Konu­kot.

    Viðtalið við Hall­dóru má nálg­ast í heild sinni hér. 

    mbl.is