Búinn að afhenda lögreglu símann

Alec Baldwin | 15. janúar 2022

Búinn að afhenda lögreglu símann

Leikarinn Alec Baldwin hefur afhent lögreglunni farsíma sinn vegna rannsóknar hennar á voðaskoti á tökustað í Nýju-Mexíkó sem varð einum að bana.

Búinn að afhenda lögreglu símann

Alec Baldwin | 15. janúar 2022

Alec Baldwin í október síðastliðnum.
Alec Baldwin í október síðastliðnum. AFP

Leik­ar­inn Alec Baldw­in hef­ur af­hent lög­regl­unni farsíma sinn vegna rann­sókn­ar henn­ar á voðaskoti á tökustað í Nýju-Mexí­kó sem varð ein­um að bana.

Leik­ar­inn Alec Baldw­in hef­ur af­hent lög­regl­unni farsíma sinn vegna rann­sókn­ar henn­ar á voðaskoti á tökustað í Nýju-Mexí­kó sem varð ein­um að bana.

Tæp­ur mánuður er liðinn síðan heim­ild var veitt til að leggja hald á sím­ann.

Kvik­mynda­töku­kon­an Halyna Hutchins var skot­in til bana þegar Baldw­in var að æfa sig með Colt-byssu á tökustað mynd­ar­inn­ar Rust í októ­ber síðastliðnum.

Frá tökustað myndarinnar Rust.
Frá tökustað mynd­ar­inn­ar Rust. AFP

Lög­reglu­embættið í höfuðborg Nýju-Mexí­kó, Santa Fe, staðfesti að leik­ar­inn hafi af­hent yf­ir­völd­um sím­ann skammt frá heim­ili sínu í New York.

Fyrr í vik­unni sagði lög­regl­an að leik­ar­inn væri ekki sam­vinnuþýður vegna rann­sókn­ar­inn­ar.

Til stend­ur að skoða gögn á borð við texta­skila­boð og tal­hólfs­skila­boð í sím­an­um í von um að þau varpi ljósi á málið. 

mbl.is