Gerðu það sem færir þér gleði

Hulda Björk Svansdóttir | 10. mars 2022

Gerðu það sem færir þér gleði

„Alveg sama hvernig lífið er og hvað er í gangi hjá manni þá er svo mikilvægt að reyna að hafa gaman. Lífið er allt of stutt til að hafa ekki gaman finnst mér, mig langar allavega ekki að eyða tímanum í eitthvað sem mér finnst leiðinlegt. Vissulega þarf maður stundum að gera hluti sem manni finnst ekki endilega skemmtilegir en ég er bara að tala um svona almennt að reyna að að gera eitthvað smá á hverjum degi sem gleður mann og nærir,“ skrifar Hulda Björk Svansdóttir í sínum nýjasta pistli.

Gerðu það sem færir þér gleði

Hulda Björk Svansdóttir | 10. mars 2022

Hulda Björk Svansdóttir er móðir Ægis Þórs sem er með …
Hulda Björk Svansdóttir er móðir Ægis Þórs sem er með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn.

„Al­veg sama hvernig lífið er og hvað er í gangi hjá manni þá er svo mik­il­vægt að reyna að hafa gam­an. Lífið er allt of stutt til að hafa ekki gam­an finnst mér, mig lang­ar alla­vega ekki að eyða tím­an­um í eitt­hvað sem mér finnst leiðin­legt. Vissu­lega þarf maður stund­um að gera hluti sem manni finnst ekki endi­lega skemmti­leg­ir en ég er bara að tala um svona al­mennt að reyna að að gera eitt­hvað smá á hverj­um degi sem gleður mann og nær­ir,“ skrif­ar Hulda Björk Svans­dótt­ir í sín­um nýj­asta pistli.

„Al­veg sama hvernig lífið er og hvað er í gangi hjá manni þá er svo mik­il­vægt að reyna að hafa gam­an. Lífið er allt of stutt til að hafa ekki gam­an finnst mér, mig lang­ar alla­vega ekki að eyða tím­an­um í eitt­hvað sem mér finnst leiðin­legt. Vissu­lega þarf maður stund­um að gera hluti sem manni finnst ekki endi­lega skemmti­leg­ir en ég er bara að tala um svona al­mennt að reyna að að gera eitt­hvað smá á hverj­um degi sem gleður mann og nær­ir,“ skrif­ar Hulda Björk Svans­dótt­ir í sín­um nýj­asta pistli.

Það þarf ekki endi­lega að vera mikið, kannski bara syngja, hitta vin, lesa í góðri bók eða fara í göngu­túr. Það skipt­ir engu máli hvað það er svo lengi sem það fær­ir manni gleði. Ég er alltaf að reyna að muna eft­ir þessu á hverj­um degi því ég trúi því að þetta sé svo mik­il­vægt fyr­ir geðheils­una. Ef maður vill geta verið til staðar fyr­ir fjöl­skyld­una sína og vini þá verður maður að vera í góðu standi er það ekki? Maður er eng­um til gagns ef maður er bara hálf mann­eskja með litla orku og ekk­ert til að gefa af sér.

Ég hef rekið mig á það í gegn­um mitt ferðalag að þegar ég er ekki dug­leg að sinna sjálfri mér þá fer að halla und­an fæti hjá mér. Þá fer ég að verða pirruð og ómögu­leg eig­in­lega og það bitn­ar svo aft­ur á mín­um nán­ustu og eng­inn græðir. Ég er því far­in að gera mér far um það að sinna því sem nær­ir mig og gleður því ég finn hvað það hef­ur góð áhrif í líf­inu mínu.

Maður set­ur sjálf­an sig allt of oft aft­ast í röðina og reyn­ir að sinna öll­um öðrum fyrst. Það geng­ur kannski í ein­hvern tíma en það kem­ur að því að maður krass­ar á því. Það er aldrei hægt að minna sjálf­an sig of oft á þetta og ég er meira að segja far­in að setja áminn­ingu í dag­bók­ina mína á hverj­um degi að gera eitt­hvað sem mér finnst gam­an til að halda mér við efnið. Ég veit að því bet­ur sem ég hugsa um mig því bet­ur get ég gert allt sem ég þarf að gera. Þetta er ekki flókið og við vit­um þetta öll, málið er bara að fara eft­ir því. Það get­ur oft verið erfitt í dags­ins önn en maður þarf þá bara að skipu­leggja sig vel, kannski vakna aðeins fyrr til að geta átt tíma með sjálf­um sér eða slökkva fyrr á sjón­varp­inu á kvöld­in. Ég er langt í frá full­kom­in að halda mig við þetta en ég reyni eins og ég get því ég finn að þetta bæt­ir lífs­gæðin mín og svo verður lífið auðvitað miklu skemmti­legra.

Mig langaði bara að deila með ykk­ur því sem hjálp­ar mér og von­andi les þetta ein­hver sem þurfti á þessu að halda í dag. Ég vona að við get­um öll gert eitt­hvað sem gleður okk­ur, við verðum bara að muna að setja okk­ur í fyrsta sætið.

mbl.is