Hafrannsóknastofnun stendur við fyrri ráðgjöf sína um að ekki verði stundaðar rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi á fiskveiðiárinu 2021/2022. Ráðgjöfin er í samræmi við varúðarsjónarmið

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar.
Samkvæmt stofnmælingu í febrúar síðastliðnum og mældist rækjustofninn undir skilgreindum varúðarmörkum og er það í samræmi við fyrri mælingu en haustið 2021 mældist stofnvísitala sú minnsta frá upphafi mælinga 1988.
Í tilkynningunni segir jafnframt að „mikil lækkun vísitölu haustið 2021 er talin skýrast af miklu magni ýsu í Ísafjarðardjúpi sem eykur afrán og breytir útbreiðslu rækju.“
Ráðgjöfin fyrir fiskveiðiárið 2020/2021 nam 586 tonnum en 568 tonn árið á undan. Það þarf að fara aftur til fiskveiðiársins 2013/2014 til að sjá ráðgjöf yrir þúsund tonn. Síðast mælti Hafrannsóknastofnun gegn rækjuveiðum í Ísafjarðardjúpi fiskveiðiárið 2010/2011.