Sá er vinur er í raun reynist

Hulda Björk Svansdóttir | 24. mars 2022

Sá er vinur er í raun reynist

„Ég hefði aldrei trúað því fyrir tíu árum þegar ég var að verða fertug að um fimmtugs aldurinn væri ég orðin móðir langveiks barns, bloggari og gerandi allt það sem ég er að gera í dag. Lífið tekur stundum handbremsubeygju og maður endar á allt annarri braut en maður stefndi á áður. Tilveran gjörbreytist og maður breytist líka sjálfur,“ skrifar Hulda Björk Svansdóttir í sínum nýjasta pistli.

Sá er vinur er í raun reynist

Hulda Björk Svansdóttir | 24. mars 2022

Hulda Björk Svansdóttir er móðir Ægis Þórs sem er með …
Hulda Björk Svansdóttir er móðir Ægis Þórs sem er með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn.

„Ég hefði aldrei trúað því fyr­ir tíu árum þegar ég var að verða fer­tug að um fimm­tugs ald­ur­inn væri ég orðin móðir lang­veiks barns, blogg­ari og ger­andi allt það sem ég er að gera í dag. Lífið tek­ur stund­um hand­bremsu­beygju og maður end­ar á allt ann­arri braut en maður stefndi á áður. Til­ver­an gjör­breyt­ist og maður breyt­ist líka sjálf­ur,“ skrif­ar Hulda Björk Svans­dótt­ir í sín­um nýj­asta pistli.

„Ég hefði aldrei trúað því fyr­ir tíu árum þegar ég var að verða fer­tug að um fimm­tugs ald­ur­inn væri ég orðin móðir lang­veiks barns, blogg­ari og ger­andi allt það sem ég er að gera í dag. Lífið tek­ur stund­um hand­bremsu­beygju og maður end­ar á allt ann­arri braut en maður stefndi á áður. Til­ver­an gjör­breyt­ist og maður breyt­ist líka sjálf­ur,“ skrif­ar Hulda Björk Svans­dótt­ir í sín­um nýj­asta pistli.

Ég er ekki sama mann­eskj­an og ég var áður en Ægir greind­ist, langt í frá. Ég hef breyst ótrú­lega mikið sem eðli­legt er þegar maður lend­ir svona áfalli. Ég vil nú meina að ég hafi breyst til hins betra þó ef til séu ekki all­ir sam­mála því en staðreynd­in er að ég hef breyst og þrosk­ast. Að eign­ast lang­veikt barn er heil­mikið þroska­ferli og hef­ur ótrú­leg áhrif á mann. Vissu­lega fara all­ir sem lenda í svona mis­jafn­lega í gegn­um þetta, breyt­ast mis­mikið og það er ekk­ert rétt eða rangt í því.

All­ar þess­ar breyt­ing­ar hafa mik­il áhrif á sam­skipti manns við vini og fjöl­skyldu. Þegar maður lend­ir í svona áfalli sér maður virki­lega hverj­ir eru vin­ir í raun. Ég hef heyrt marga for­eldra lang­veikra barna segja að þeir hafi misst vini út af þessu og jafn­vel fjöl­skyldu líka. Þetta ferðalag er ekki fyr­ir alla og sum­ir höndla ein­fald­lega ekki þenn­an raun­veru­leika og geta ekki verið til staðar fyr­ir mann, þannig er það bara. Ég hef full­an skiln­ing á því og eins og sagt er komi þeir sem koma vilja og fari þeir sem fara vilja, ekk­ert nema kær­leik­ur frá mér. Þannig er lífið ein­fald­lega. Fólk kem­ur inn í líf okk­ar og á mis­mik­inn þátt í sög­unni okk­ar. Sum­ir eru bara einn kafli meðan aðrir eru aðal sögu­hetj­urn­ar. Sum­ir koma inn í líf manns í ein­hvern tíma hverfa svo á braut en koma aft­ur. Þetta er að sjálf­sögðu alls kon­ar en aðal­málið er hversu mik­il­vægt það er fyr­ir for­eldra lang­veikra barna að eiga góða að sem standa með manni í blíðu og stríðu. Maður þarf virki­lega mikið á góðu baklandi að halda. Að fá stuðning í þeim áskor­un­um sem lífið verður þegar maður á lang­veikt barn.

Ég er ótrú­lega hepp­in með vini og fjöl­skyldu sem hafa staðið með mér í gegn­um þetta allt sam­an en ég finn al­veg að sum­ir hafa fjar­lægst aðeins. Það er auðvitað pínu sárt en ég hef líka eign­ast nýja vini í staðinn sem ég er svo þakk­lát fyr­ir. Vini sem skilja al­ger­lega hvernig mér líður, skilja ferðalagið sem ég er í og hvað ég er að ganga í gegn­um. Vin­ir sem hafa sjálf­ir gengið í gegn­um þess­ar breyt­ing­ar og vita hvernig það er. Ég er inni­lega þakk­lát þeim sem hafa reynst mér vel á þessu ferðalagi. Takk fyr­ir að styðja mig og vera til staðar, það er ynd­is­legt að eiga vini í raun.

mbl.is