Lundúnir að hætti Kim Cattrall

Lundúnir | 15. maí 2022

Lundúnir að hætti Kim Cattrall

Í nýjustu þáttaröðinni af Beðmálum í borginni er Samantha Jones flutt til Lundúna og leikkonan Kim Cattrall víðs fjarri. Svo vill hins vegar til að leikkonan þekkir borgina afar vel eftir að hafa unnið þar. Hún mælir með nokkrum skemmtilegum hlutum sem hægt er að gera í borginni. 

Lundúnir að hætti Kim Cattrall

Lundúnir | 15. maí 2022

Kim Cattrall þekkir Lundúnir vel.
Kim Cattrall þekkir Lundúnir vel. AFP

Í nýj­ustu þáttaröðinni af Beðmál­um í borg­inni er Sam­an­tha Jo­nes flutt til Lund­úna og leik­kon­an Kim Cattrall víðs fjarri. Svo vill hins veg­ar til að leik­kon­an þekk­ir borg­ina afar vel eft­ir að hafa unnið þar. Hún mæl­ir með nokkr­um skemmti­leg­um hlut­um sem hægt er að gera í borg­inni. 

Cattrall mæl­ir með því að skoða það sem Nati­onal Trust býður upp á. Hún lýsti því í viðtali við E! fyr­ir nokkr­um árum hversu ynd­is­legt það væri að skoða fal­leg hús og ynd­is­lega garða sem Nati­onal Trust held­ur utan um víðsveg­ar á Bret­land. 

Leik­kon­an mæl­ir einnig með því að skella sér á hinn skemmti­lega Borough Mar­ket á laug­ar­dög­um. Markaður­inn er einn skemmti­leg­asti mat­ar­markaður­inn í Lund­ún­um og kunni Cattrall vel að meta hann. Hún mæl­ir með að kanna mat­ar­bás­ana og fá sér há­deg­is­mat eða létt­an bita á mat­ar­markaðnum. 

Stjarn­an mæl­ir með að fara í leik­hús og ekki bara á söng­leiki. Hún mæl­ir með leik­hús­um á borð við The Old Vic, Breska þjóðleik­hús­inu og The Royal Court. 

Hvað á að gera í Lundúnum?
Hvað á að gera í Lund­ún­um? AFP
mbl.is