„Hann er að verða betri með hverjum deginum“

Justin Bieber | 16. júní 2022

„Hann er að verða betri með hverjum deginum“

Fyrirsætan Hailey Bieber segir að eiginmaður sinn, Justin Bieber sé að verða betri með hverjum deginum, en hann opnaði sig nýlega um sjúkdómsgreiningu á sjaldgæfum taugasjúkdómi, Ramsey Hunt sem veldur útbrotum, eyrnaverkjum og lömun í andliti.

„Hann er að verða betri með hverjum deginum“

Justin Bieber | 16. júní 2022

Justin Bieber og Hailey Bieber.
Justin Bieber og Hailey Bieber. AFP

Fyr­ir­sæt­an Hailey Bie­ber seg­ir að eig­inmaður sinn, Just­in Bie­ber sé að verða betri með hverj­um deg­in­um, en hann opnaði sig ný­lega um sjúk­dóms­grein­ingu á sjald­gæf­um tauga­sjúk­dómi, Rams­ey Hunt sem veld­ur út­brot­um, eyrna­verkj­um og löm­un í and­liti.

„Hon­um geng­ur mjög vel. Hon­um líður mikið bet­ur en aug­ljós­lega var þetta mjög skelfi­legt og óvænt að þetta skyldi ger­ast,“ sagði fyr­ir­sæt­an í sam­tali við Good Morn­ing America. Hún seg­ir þau hjón­in hafa fengið mik­inn stuðning frá aðdá­end­um þeirra. „Hver ein­asta mann­eskja hef­ur sent góðar kveðjur og ráðlegg­ing­ar á okk­ur. Þetta hef­ur verið al­veg ótrú­legt.“

Aðeins þrír mánuðir eru síðan Hailey var sjálf flutt með hraði á sjúkra­hús vegna blóðtappa við heila.

„Að fara í gegn­um þetta mjög op­in­ber­lega fyr­ir fram­an fullt af fólki neyðir þig í raun til að vera op­inn um hvað er að ger­ast svo fólk skilji hvað þú ert að ganga í gegn­um. Ég held reynd­ar að það hafi opnað fyr­ir mörg mik­il­væg og mögnuð sam­töl,“ seg­ir Hailey. 

mbl.is