Þýðingarmikið skref í skaðaminnkun

Þýðingarmikið skref í skaðaminnkun

Hafrún Elísa Sigurðardóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar, segir að aukið aðgengi að Naloxone í nefúðaformi sé gríðarlega þýðingarmikið skref í skaðaminnkun hérlendis.

Þýðingarmikið skref í skaðaminnkun

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 5. júlí 2022

Hafrún Elísa Sigurðardóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar.
Hafrún Elísa Sigurðardóttir, verkefnastýra Frú Ragnheiðar.

Hafrún Elísa Sig­urðardótt­ir, verk­efn­a­stýra Frú Ragn­heiðar, seg­ir að aukið aðgengi að Naloxo­ne í nefúðaformi sé gríðarlega þýðing­ar­mikið skref í skaðam­innk­un hér­lend­is.

Hafrún Elísa Sig­urðardótt­ir, verk­efn­a­stýra Frú Ragn­heiðar, seg­ir að aukið aðgengi að Naloxo­ne í nefúðaformi sé gríðarlega þýðing­ar­mikið skref í skaðam­innk­un hér­lend­is.

Heil­brigðisráðuneytið í sam­vinnu við Land­spít­al­ann til­kynnti á dög­un­um að aðgengi að lyf­inu verði aukið um allt land, not­end­um að kostnaðarlausu.

Lítið aðgengi að lyf­inu

Lyfið er notað þegar þörf er á neyðarmeðferð vegna of­neyslu ópíóða sem get­ur valdið önd­un­ar­stoppi og dauða. Skjól­stæðing­ar Frú Ragn­heiðar til­heyra jaðar­sett­um hóp en um er að ræða fólk sem er ým­ist er heim­il­is­laust, með fjölþætt­an vímu­efna­vanda eða hvort tveggja.

„Það hef­ur verið lítið aðgengi að lyf­inu og við í Frú Ragn­heiði og Ylju höf­um síðustu mánuði verið að dreifa því til not­enda. Það hef­ur gengið mjög vel og mikið af nefúðum sem eru farn­ir út,“ seg­ir Hafrún og bæt­ir því að fyrstu send­ing­arn­ar af lyf­inu hafi borist Frú Ragn­heiði í fe­brú­ar en þær hafi verið fjár­magnaðar af einkaaðilum.

Naloxone-nefúði.
Naloxo­ne-nefúði. mbl.is/​Val­g­arður Gísla­son

„Núna er þetta að koma frá því op­in­bera, þá er betra aðgengi fyr­ir okk­ur og sveit­ar­fé­lög­in til þess að nálg­ast það, og auðvitað not­end­ur sem er aðal atriðið.“

Hafrún seg­ir að starfs­fólk Frú Ragn­heiðar hafi þegar heyrt af fimm til­vik­um þar sem nefúðinn frá þeim hafi verið notaður.

All­ir sem nota ópíóða ættu að eiga lyfið

Naloxo­ne-nefúðinn er vel pakkaður inn í sér­staka tösku fyr­ir heim­il­is­lausa. Skjól­stæðing­ar Frú Ragn­heiðar ein­fald­lega óska eft­ir úðanum og þau koma úðanum til hans. „Svo fá þau stutta fræðslu um hvernig úðinn virk­ar og bæk­ling sem þau fara í gegn­um með okk­ur.“

Hafrún tek­ur fram að all­ir ein­stak­ling­ar sem taka ópíóða, hvort sem þeir séu jaðar­sett­ir eða ekki, eigi að eiga lyfið ef eitt­hvað skyldi koma upp.

„Ég myndi segja að á öll­um heim­il­um þar sem eru ópíóðar ætti að vera til Naloxo­ne. Því maður veit aldrei hvað get­ur gerst,“ seg­ir Hafrún.

Naloxo­ne er hvorki ávana­bind­andi né hættu­legt. Eina notk­un þess er taf­ar­laus neyðarmeðferð vegna ofskömmt­un ópíóða, en mik­il­vægt er að koma ein­stak­lingi und­ir lækn­is­hend­ur eft­ir notk­un lyfs­ins.

mbl.is