Berdreymi og Volaða land í forvali

Berdreymi og Volaða land í forvali

Kvikmyndirnar Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson og Volaða land eftir Hlyn Pálmason eru á meðal kvikmynda í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár en þau verða veitt í Reykjavík í desember.

Berdreymi og Volaða land í forvali

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 2022 | 18. ágúst 2022

Stilla úr kvikmyndinni Volaða land.
Stilla úr kvikmyndinni Volaða land. Ljósmynd/Aðsend

Kvik­mynd­irn­ar Ber­d­reymi eft­ir Guðmund Arn­ar Guðmunds­son og Volaða land eft­ir Hlyn Pálma­son eru á meðal kvik­mynda í for­vali til Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­anna í ár en þau verða veitt í Reykja­vík í des­em­ber.

Kvik­mynd­irn­ar Ber­d­reymi eft­ir Guðmund Arn­ar Guðmunds­son og Volaða land eft­ir Hlyn Pálma­son eru á meðal kvik­mynda í for­vali til Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­anna í ár en þau verða veitt í Reykja­vík í des­em­ber.

Ber­d­reymi var heims­frum­sýnd á kvik­mynda­hátíðinni í Berlín í fe­brú­ar og hlaut þar Europa Cinem­as Label verðlaun­in sem besta evr­ópska mynd­in í Panorama flokki. Hef­ur hún unnið til fjölda annarra verðlauna.


Volaða land var heims­frum­sýnd á kvik­mynda­hátíðinni í Cann­es í vor og hlaut mikið gagn­rýn­enda. Hún verður frum­sýnd hér á landi í vet­ur.


Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­in eru af­hent annað hvert ár við hátíðlega at­höfn í Berlín en þess á milli til skipt­is í öðrum borg­um Evr­ópu. Í þetta sinn fer hátíðin fram í Reykja­vík, 10. des­em­ber. Upp­haf­lega stóð til að hún færi fram hér á landi árið 2020 en hátíðinni var frestað vegna heims­far­ald­urs­ins.

Úr kvikmyndinni Berdreymi.
Úr kvik­mynd­inni Ber­d­reymi.
mbl.is