Ekki lengur tekjuhæsta klámstjarnan

Onlyfans | 18. ágúst 2022

Ekki lengur tekjuhæsta klámstjarnan

Tekjur klámstjörnunnar Klöru Sifjar Magnúsdóttur námu aðeins 113 þúsund krónum á mánuði að meðaltali á síðasta ári. Það er talsvert lægra en árið þar á undan þegar mánaðarlegar tekjur hennar námu 1,1 milljón króna. DV greinir frá en álagningarskrá ríkisskattsstjóra var gefin út í gær. 

Ekki lengur tekjuhæsta klámstjarnan

Onlyfans | 18. ágúst 2022

Edda Lovísa Björgvinsdóttir, Ósk Tryggvadóttir, Ingólfur Valur Þrastarson, Klara Sif …
Edda Lovísa Björgvinsdóttir, Ósk Tryggvadóttir, Ingólfur Valur Þrastarson, Klara Sif Magnúsdóttir og Birta Blanco selja öll klám á Only Fans. Samsett mynd

Tekj­ur klám­stjörn­unn­ar Klöru Sifjar Magnús­dótt­ur námu aðeins 113 þúsund krón­um á mánuði að meðaltali á síðasta ári. Það er tals­vert lægra en árið þar á und­an þegar mánaðarleg­ar tekj­ur henn­ar námu 1,1 millj­ón króna. DV grein­ir frá en álagn­ing­ar­skrá rík­is­skatts­stjóra var gef­in út í gær. 

Tekj­ur klám­stjörn­unn­ar Klöru Sifjar Magnús­dótt­ur námu aðeins 113 þúsund krón­um á mánuði að meðaltali á síðasta ári. Það er tals­vert lægra en árið þar á und­an þegar mánaðarleg­ar tekj­ur henn­ar námu 1,1 millj­ón króna. DV grein­ir frá en álagn­ing­ar­skrá rík­is­skatts­stjóra var gef­in út í gær. 

Klara var tekju­hæsta klám­stjarna lands­ins á síðasta ári en hún sel­ur efni á Only Fans. Klara hef­ur látið staðar numið í efn­is­fram­leiðslu að því er fram kem­ur á reikn­ingi henn­ar á síðunni, en enn er hægt að kaupa áskrift að rás henn­ar og nálg­ast eldra efni. 

Klara Sif.
Klara Sif. Skjá­skot/​In­sta­gram

Edda tekju­hæst á síðasta ári

Edda Lovísa Björg­vins­dótt­ir sel­ur einnig efni á Only Fans, en hún hef­ur starfað á þeim vett­vangi í rúm tvö ár. Miðað við greitt út­svar var hún með 383 þúsund krón­ur á mánuði að meðaltali.

Edda Lovísa Björgvinsdóttir.
Edda Lovísa Björg­vins­dótt­ir. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Hin 24 ára gamla Ósk Tryggva­dótt­ir, sem sel­ur klám­fengið efni á Only Fans, var með 377 þúsund krón­ur á mánuði á síðasta ári miðað við greitt út­svar. Hún sel­ur efni ásamt kær­asta sín­um, Ingólfi Val Þrast­ar­syni. Hans tekj­ur voru lægri, eða um 121 þúsund krón­ur á mánuði að meðaltali.

Ingólfur Valur Þrastarson og Ósk Tryggvadóttir.
Ingólf­ur Val­ur Þrast­ar­son og Ósk Tryggva­dótt­ir. Skjá­skot/​In­sta­gram

Klám­stjarn­an Birta Blanco var með 141 þúsund krón­ur í laun á mánuði á síðasta ári miðað við greitt út­svar. Hún sel­ur efni sitt á Only Fans líkt og hinar stjörn­urn­ar.

Birta Blanco.
Birta Blanco. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is