Ætlar ekki að kynna Óskarinn aftur

Óskarsverðlaunin | 30. ágúst 2022

Ætlar ekki að kynna Óskarinn aftur

Grínistinn Chris Rock segist hafa hafnað boði um að vera kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni á næsta ári. Þetta kom fram í uppistandi sem Rock hélt í Arizona, Bandaríkjunum síðustu helgi.

Ætlar ekki að kynna Óskarinn aftur

Óskarsverðlaunin | 30. ágúst 2022

Chris Rock var kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars.
Chris Rock var kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni í mars. AFP/ Neilson Barnard

Grín­ist­inn Chris Rock seg­ist hafa hafnað boði um að vera kynn­ir á Óskar­sverðlauna­hátíðinni á næsta ári. Þetta kom fram í uppist­andi sem Rock hélt í Arizona, Banda­ríkj­un­um síðustu helgi.

Grín­ist­inn Chris Rock seg­ist hafa hafnað boði um að vera kynn­ir á Óskar­sverðlauna­hátíðinni á næsta ári. Þetta kom fram í uppist­andi sem Rock hélt í Arizona, Banda­ríkj­un­um síðustu helgi.

Fæst­ir hafa gleymt löðrungn­um fræga sem leik­ar­inn Will Smith gaf Chris Rock á Óskar­sverðlauna­hátíðinni í mars. Á vef Arizona Repu­blic kem­ur fram að í uppist­and­inu hafi Rock sagt end­ur­komu sem kynn­ir á Óskar­sverðlaun­un­um vera eins og að snúa aft­ur á vett­vang glæps.

Rock var einnig kynn­ir á hátíðinni árin 2005 og 2016, en hann seg­ir löðrung­inn hafa haft mik­il áhrif á sig og hann hafi hafnað boði um að koma fram í Super Bowl aug­lýs­ingu í kjöl­far löðrungs­ins. Það er því ljóst að Rock þarf lengri tíma til að jafna sig áður en hann snýr aft­ur á svið sem kynn­ir. 

mbl.is