Setja verðþak á olíu frá Rússlandi

Úkraínustríðið | 2. september 2022

Setja verðþak á olíu frá Rússlandi

Fjármálaráðherrar G7-ríkjanna ætla að setja á sérstakt verðþak á olíu sem keypt er frá Rússlandi til að takmarka tekjur Rússlands og möguleika þeirra til að fjármagna stríð sitt gegn Úkraínu. Þetta kemur fram í samkomulagi ráðherrana iðnríkjanna sjö sem mynda G7-hópinn.

Setja verðþak á olíu frá Rússlandi

Úkraínustríðið | 2. september 2022

Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, er meðal þeirra sjö fjármálaráðherra G7-ríkjanna …
Janet Yellen, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, er meðal þeirra sjö fjármálaráðherra G7-ríkjanna sem hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. AFP

Fjár­málaráðherr­ar G7-ríkj­anna ætla að setja á sér­stakt verðþak á olíu sem keypt er frá Rússlandi til að tak­marka tekj­ur Rúss­lands og mögu­leika þeirra til að fjár­magna stríð sitt gegn Úkraínu. Þetta kem­ur fram í sam­komu­lagi ráðherr­ana iðnríkj­anna sjö sem mynda G7-hóp­inn.

Fjár­málaráðherr­ar G7-ríkj­anna ætla að setja á sér­stakt verðþak á olíu sem keypt er frá Rússlandi til að tak­marka tekj­ur Rúss­lands og mögu­leika þeirra til að fjár­magna stríð sitt gegn Úkraínu. Þetta kem­ur fram í sam­komu­lagi ráðherr­ana iðnríkj­anna sjö sem mynda G7-hóp­inn.

Í til­kynn­ingu frá fjár­málaráðherr­um ríkj­anna seg­ir að aðgerðirn­ar séu einnig hannaðar til að draga úr áhrif­um stríðsins á alþjóðlegt orku­verð, aðallega í fá­tæk­ari lönd­um.

Janet Yell­en, fjár­málaráðherra Banda­ríkj­anna, seg­ir verðþakið mik­il­vægt skref í átt að því að ná bæði niður þrýst­ingi á orku­verð í heim­in­um og að draga úr tekj­um Rúss­lands til að styðja við stríð þeirra.

Meðal ann­ars er horft til þess að heim­ila aðeins ol­íu­kaup­end­um að eiga viðskipti við Rúss­land sé olí­an keypt á eða und­ir verðþak­inu. Á meðal ann­ars að koma í veg fyr­ir að fyr­ir­tæki geti flutt ol­í­una frá Rússlandi nema upp­fylla þessi skil­yrði.

Ekki hef­ur enn verið greint frá því hvað þakið verði, en í yf­ir­lýs­ingu ráðherr­ana seg­ir að það verði gert op­in­ber­lega og á skýr­an og gegn­sæj­an hátt.

Áður en yf­ir­lýs­ing ráðherr­ana var send út til­kynntu yf­ir­völd í Moskvu að til­raun­ir til að setja á verðþak yrði mætt með aðgerðum Rússa. Sagði Dmi­try Peskov, talsmaður stjórn­valda þar í landi að fyr­ir­tæki sem myndu vinna sam­kvæmt verðþak­inu myndu ekki verða viðskipta­vin­ir rúss­neskra olíu­fyr­ir­tækja.

Sagði Peskov jafn­framt að inn­leiðing verðþaks myndi valda óstöðug­leika á ol­íu­mörkuðum.

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur þegar til­kynnt að það hygg­ist banna inn­flutn­ing á hrá­ol­íu frá Rússlandi frá og með 5. des­em­ber.

G7-rík­in sam­an­standa af Banda­ríkj­un­um, Bretlandi, Frakklandi, Ítal­íu, Kan­ada, Jap­an og Þýskalandi. Þá hef­ur Evr­ópu­sam­bandið einnig aðild án þess að vera talið sér­stak­lega með sem aðili hóps­ins.

Þrátt fyr­ir að í hópn­um séu mörg af stærstu iðnríkj­um heims er þar ekki að finna bæði Kína og Ind­land, en þau eru bæði stór viðskipta­lönd Rúss­lands og óvíst að þau muni fylgja hug­mynd­um G7-ríkj­anna, en bæði Kína og Ind­land hafa hingað til ekki tekið und­ir viðskiptaþving­an­ir vest­ur­velda gegn Rússlandi vegna stríðsins.

mbl.is