Föðmuðust eftir Bieber dramað

Justin Bieber | 17. október 2022

Föðmuðust eftir Bieber dramað

Söngkonan Selena Gomez og fyrirsætan Hailey Bieber féllu í faðmlög á galahátíð í Bandaríkjunum í gær eftir sögusagnir um áralangt drama. Selena var áður með eiginmanni Hailey, tónlistarmanninum Justin Bieber, og snérist meint drama um að Hailey og Justin hafi byrjað að hittast á meðan hann var enn með Selenu. 

Föðmuðust eftir Bieber dramað

Justin Bieber | 17. október 2022

Ljósmynd af Selenu Gomez og Hailey Bieber í faðmlögum á …
Ljósmynd af Selenu Gomez og Hailey Bieber í faðmlögum á galahátíð um helgina hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Söng­kon­an Selena Gomez og fyr­ir­sæt­an Hailey Bie­ber féllu í faðmlög á gala­hátíð í Banda­ríkj­un­um í gær eft­ir sögu­sagn­ir um ára­langt drama. Selena var áður með eig­in­manni Hailey, tón­list­ar­mann­in­um Just­in Bie­ber, og snér­ist meint drama um að Hailey og Just­in hafi byrjað að hitt­ast á meðan hann var enn með Selenu. 

Söng­kon­an Selena Gomez og fyr­ir­sæt­an Hailey Bie­ber féllu í faðmlög á gala­hátíð í Banda­ríkj­un­um í gær eft­ir sögu­sagn­ir um ára­langt drama. Selena var áður með eig­in­manni Hailey, tón­list­ar­mann­in­um Just­in Bie­ber, og snér­ist meint drama um að Hailey og Just­in hafi byrjað að hitt­ast á meðan hann var enn með Selenu. 

Ný­lega kom Hailey fram í hlaðvarp­inu Call Her Daddy þar sem hún opnaði sig í fyrsta sinn um sögu­sagn­irn­ar, en þar sagði hún ekk­ert nema ást og virðingu vera á milli henn­ar og Selenu.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Ty (@tyr­ell­hampt­on)

Aðdá­end­ur Selenu og Just­in marg­ir

Selena og Just­in eiga sér langa sögu, en þau voru par á ár­un­um 2019 til 2018. Sam­band þeirra var þó nokkuð óstöðugt, en þrátt fyr­ir það voru aðdá­end­ur pars­ins marg­ir og áttu erfitt með að sætta sig við sam­bands­slit­in. 

Hailey og Just­in trú­lofuðu sig aðeins nokkr­um mánuðum eft­ir sam­bands­slit Selenu og Just­ins, en það vakti nokkra reiði meðal aðdá­enda fyrr­um pars­ins sem hafa gert í því að níðast á Hailey og Just­in í gegn­um sam­band þeirra, bæði á sam­fé­lags­miðlum og viðburðum. 

Seg­ist ekki hafa „stolið“ Just­in af Selenu

Í hlaðvarp­inu staðfesti Hailey að hún hefði talað við Selenu áður en hún gift­ist Just­in í sept­em­ber 2018 og ít­rekaði enn og aft­ur að eng­in drama­tík væri á milli þeirra. Í viðtal­inu lagði hún einnig áherslu á að hún hafi ekki „stolið“ Just­in frá Selenu eins og marg­ir aðdá­end­ur héldu fram. 

mbl.is