Heimilislausir boða til annars setuverkfalls

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 17. október 2022

Heimilislausir boða til annars setuverkfalls

Viðmót, sam­tök um mannúðlega vímu­efna­stefnu á Íslandi, hafa boðað til annars setu­verk­falls í neyðaskýl­inu á Grandag­arði 1a, sem er úrræði fyr­ir heim­il­is­lausa karl­menn á veg­um Vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, á morgun.

Heimilislausir boða til annars setuverkfalls

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 17. október 2022

Neyðarskýlinu á Granda er ætlað yngri heimilislausum karlmönnum.
Neyðarskýlinu á Granda er ætlað yngri heimilislausum karlmönnum. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Viðmót, sam­tök um mannúðlega vímu­efna­stefnu á Íslandi, hafa boðað til ann­ars setu­verk­falls í neyðaskýl­inu á Grandag­arði 1a, sem er úrræði fyr­ir heim­il­is­lausa karl­menn á veg­um Vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, á morg­un.

Viðmót, sam­tök um mannúðlega vímu­efna­stefnu á Íslandi, hafa boðað til ann­ars setu­verk­falls í neyðaskýl­inu á Grandag­arði 1a, sem er úrræði fyr­ir heim­il­is­lausa karl­menn á veg­um Vel­ferðarsviðs Reykja­vík­ur­borg­ar, á morg­un.

Sam­tök­in krefjast þess ann­ars veg­ar að það verði heils­dag­sopn­un í neyðar­skýl­um þegar það er gul viðvör­un eða hærra og hins veg­ar að það verði opnað dag­set­ur á dag­inn fyr­ir heim­il­is­lausa karl­menn í Reykja­vík í sam­lík­ingu við Skjólið sem er dag­set­ur fyr­ir kon­ur.

„Það er að koma vet­ur“

Í til­kynn­ingu frá Viðmót­um seg­ir að sam­tök­in fagna því að vel­ferðarsvið Reykja­vík­ur­borg­ar leggi áherslu á að finna var­an­lega bú­setu­kosti fyr­ir ein­stak­linga sem glíma við heim­il­is­leysi og nýta sér neyðar­skýl­in í Reykja­vík. Aft­ur á móti leys­ir það ekki vand­ann sem heim­il­is­laus­ir karl­menn standa frammi fyr­ir þessa stund­ina.

„Það er að koma vet­ur, það er orðið kalt og er staðreynd­in sú að við höf­um ekki í nein hús að venda frá kl 10:00-17:00 þegar neyðaskýl­in eru lokuð.“

Upp­lifa sig ekki vel­komna 

„Við vit­um vel að bóka­söfn­in eru opin á dag­inn en upp­lif­um það alls ekki sem val­kost sem hent­ar okk­ur öll­um né bóka­söfn­un­um sjálf­um. Við upp­lif­um okk­ur ekki alltaf vel­komna þangað enda glíma marg­ir okk­ar við fjölþætt­an og flók­inn vanda þ.á m. nota vímu­efni, og þurf­um við ákveðna þjón­ustu og ramma sem að bóka­söfn og al­menn rými í sam­fé­lag­inu eru ekki fær um að veita okk­ur.

Við vit­um líka vel að Kaffi­stofa Sam­hjálp­ar og Hjálp­ræðis­her­inn eru opin að hluta til á dag­inn en þessi úrræði eru mat­araðstoð og geta ekki mætt okk­ar þörf­um fyr­ir ör­ugg­an stað á dag­inn. Ef borg­inni er annt um reisn okk­ar, heilsu og mann­rétt­indi ætti hún að leggja áherslu á og beita sér fyr­ir mann­sæm­andi úrræði bæði núna og til fram­búðar.”

Sam­tök­in munu halda áfram að koma sjón­ar­miðum sín­um á fram­færi með friðsam­leg­um mót­mæl­um þar til „sann­gjörn­um og mannúðleg­um kröf­um okk­ar er mætt“.

mbl.is