Segjast ranglega bendlaðir við kynferðisbrot

MeT­oo - #Ég líka | 18. október 2022

Segjast ranglega bendlaðir við kynferðisbrot

Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa borist „nokkrar kvartanir“ frá einstaklingum sem telja sig hafa verið ranglega bendlaðir við kynferðisbrot fyrir um tveimur vikum þegar nöfn þeirra voru rituð á spegil í skólanum og mynd af því deilt á samfélagsmiðlum.

Segjast ranglega bendlaðir við kynferðisbrot

MeT­oo - #Ég líka | 18. október 2022

Nöfn sex nemenda voru rituð á spegilinn og myndum deilt …
Nöfn sex nemenda voru rituð á spegilinn og myndum deilt á samfélagsmiðla. Ljósmynd/Aðsend

Mennta­skól­an­um við Hamra­hlíð hafa borist „nokkr­ar kvart­an­ir“ frá ein­stak­ling­um sem telja sig hafa verið rang­lega bendlaðir við kyn­ferðis­brot fyr­ir um tveim­ur vik­um þegar nöfn þeirra voru rituð á speg­il í skól­an­um og mynd af því deilt á sam­fé­lags­miðlum.

Mennta­skól­an­um við Hamra­hlíð hafa borist „nokkr­ar kvart­an­ir“ frá ein­stak­ling­um sem telja sig hafa verið rang­lega bendlaðir við kyn­ferðis­brot fyr­ir um tveim­ur vik­um þegar nöfn þeirra voru rituð á speg­il í skól­an­um og mynd af því deilt á sam­fé­lags­miðlum.

Þetta seg­ir í bréfi sem rektor­inn sendi til allra nem­anda skól­ans í kvöld. Þar seg­ir að þrjú mál séu sem stend­ur í ferli „á grund­velli til­kynn­inga um at­vik utan skól­ans“. Sex nöfn voru rituð á speg­il­inn.

Mikla at­hygli vakti í upp­hafi mánaðar­ins þegar nem­end­ur í MH og öðrum skól­um kröfðust úr­bóta varðandi hvernig tekið væri á kyn­ferðis­legu of­beldi og -áreitni meðal nem­enda.

Á annað þúsund mennskælinga mótmæltu í upphafi mánaðar meintri þöggunarmenningu …
Á annað þúsund menn­skæl­inga mót­mæltu í upp­hafi mánaðar meintri þögg­un­ar­menn­ingu skóla­stjórn­enda. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Teymi taki mál­in til meðferðar

„Nokkr­ar kvart­an­ir um einelti hafa verið send­ar skól­an­um frá ein­stak­ling­um á þeim grund­velli að nöfn þeirra hafi að ósekju verið rituð á spegl­ana. Þau mál fara í ferli og hef­ur skól­inn óskað eft­ir því að ut­anaðkom­andi teymi taki þau mál til meðferðar,“ seg­ir í bréf­inu.

Því næst er áréttað að skól­inn muni „sinna skyldu sinni til að hlúa að öll­um nem­end­um og hafi í kjöl­farð at­b­urða síðustu vikna hafið vinnu við að upp­færa áætlan­ir um viðbrögð við einelti, kyn­ferðis­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og of­beldi.

Skól­inn fagni þeim um­bót­um sem séu að eiga sér stað eft­ir að nem­end­ur kröfðust þess.

Steinn Jóhannsson, rektor MH, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og …
Steinn Jó­hanns­son, rektor MH, og Ásmund­ur Ein­ar Daðason, mennta- og barna­málaráðherra, mættu á mót­mæl­in þann 6. októ­ber og hétu báðir úr­bót­um. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Bréfið í heild sinni:

Í kjöl­far þess að nöfn nokk­urra nem­enda Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð voru rituð á spegla á sal­ern­um skól­ans hóf skól­inn upp­lýs­inga­öfl­un í sam­ræmi við viðbragðsáætl­un vegna kyn­ferðis­legr­ar áreitni/​kyn­ferðis­legs of­beld­is. Þrjú mál eru sem stend­ur í ferli á grund­velli til­kynn­inga um at­vik utan skól­ans.

Nokkr­ar kvart­an­ir um einelti hafa verið send­ar skól­an­um frá ein­stak­ling­um á þeim grund­velli að nöfn þeirra hafi að ósekju verið rituð á spegl­ana. Þau mál fara í ferli og hef­ur skól­inn óskað eft­ir því að ut­anaðkom­andi teymi taki þau mál til meðferðar. Mennta­skól­inn við Hamra­hlíð mun eft­ir sem áður sinna skyldu sinni til að hlúa að öll­um nem­end­um. Í kjöl­far at­b­urða síðustu vikna hef­ur skól­inn þegar hafið vinnu við að upp­færa áætlan­ir um viðbrögð við einelti, kyn­ferðis­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og of­beldi. Þá fagn­ar skól­inn því að stjórn­völd og hags­muna­sam­tök nem­enda hafi sett af stað vinnu sem miðar að því að bæta úr­vinnslu slíkra mála.

mbl.is