Anna María hlýtur viðurkenningu Stígamóta

MeT­oo - #Ég líka | 19. október 2022

Anna María hlýtur viðurkenningu Stígamóta

Anna María Bjarnadóttir hlaut hugrekkisviðurkenningu Stígamóta í ár. Hún greindi frá þessu á Instagram í gær. Anna Maria steig fram í maí árið 2021 og greindi frá Me-Too-sögu sinni en hún sagði tvo þekkta menn, annan þjóðþekktan, hafa brotið á sér árið 2010. 

Anna María hlýtur viðurkenningu Stígamóta

MeT­oo - #Ég líka | 19. október 2022

Anna María Bjarnadóttir hlaut hugrekkisviðurkenningu Stígamóta.
Anna María Bjarnadóttir hlaut hugrekkisviðurkenningu Stígamóta. Skjáskot/Instagram

Anna María Bjarna­dótt­ir hlaut hug­rekkisviður­kenn­ingu Stíga­móta í ár. Hún greindi frá þessu á In­sta­gram í gær. Anna Maria steig fram í maí árið 2021 og greindi frá Me-Too-sögu sinni en hún sagði tvo þekkta menn, ann­an þjóðþekkt­an, hafa brotið á sér árið 2010. 

„Lang­ir en samt svo stutt­ir mánuðir og ár að baki. Það krefst hug­rekk­is að standa með sjálf­um sér og berj­ast á móti ansi hörðum straumi. Ég sé ekki eft­ir einu ein­asta skrefi! Takk all­ir sem hafa stutt við bakið á mér, ykk­ur verð ég æv­in­lega þakk­lát,“ skrifaði Anna María við mynd af sér með viður­kenn­ingu Stíga­móta. 

„Bar­áttu­kon­an Anna María hóf bar­áttu sína fyr­ir rétt­læti í heimi þar sem hug­mynd­ir fólks um hvað er rétt­látt er litað af pen­ing­um, völd­um og skaðleg­um viðhorf­um í garð kvenna. Hún hef­ur staðið keik og með hug­rekki sínu og staðfestu rutt braut­ina fyr­ir aðra,“ seg­ir í viður­kenn­ing­ar­skjal­inu og henni þakkað fyr­ir að að vera bar­áttu­kona og fyr­ir­mynd. 

Mál mann­anna sem Anna María sagði hafa brotið á sér kyn­ferðis­lega var tekið inn á borð héraðssak­sókn­ara fyrr á þessu ári, en látið niður falla. Hún kærði þann úr­sk­urð.

mbl.is