Stjörnum prýdd útför rappara

Justin Bieber | 10. nóvember 2022

Stjörnum prýdd útför rappara

Búist er við að hver stórstjarnan á fætur annarri muni stíga á svið í jarðarför rapparans Takeoff sem var skotinn til bana í Bandaríkjunum aðeins 28 ára að aldri.

Stjörnum prýdd útför rappara

Justin Bieber | 10. nóvember 2022

Stjörnur á borð við Justin Bieber og Aliciu Keys munu …
Stjörnur á borð við Justin Bieber og Aliciu Keys munu koma fram í jarðaför rapparans Takeoff. Samsett mynd

Bú­ist er við að hver stór­stjarn­an á fæt­ur ann­arri muni stíga á svið í jarðarför rapp­ar­ans Takeoff sem var skot­inn til bana í Banda­ríkj­un­um aðeins 28 ára að aldri.

Bú­ist er við að hver stór­stjarn­an á fæt­ur ann­arri muni stíga á svið í jarðarför rapp­ar­ans Takeoff sem var skot­inn til bana í Banda­ríkj­un­um aðeins 28 ára að aldri.

Fram kem­ur á vef TMZ að stefnt sé að því að heiðra rapp­ar­ann með minn­ing­ar­at­höfn á föstu­dag­inn þar sem stjörn­ur á borð við Just­in Bie­ber og Aliciu Keys munu koma fram.

Takeoff var í rappsveit­inni Migos sem spilaði hér á Íslandi árið 2017, en hann var skot­inn til bana í Hou­st­on í Texas. Skotárás­in átti sér stað í keilu­höll í borg­inni en Takeoff var úr­sk­urðaður lát­inn á staðnum. 

Miðarn­ir seld­ust upp sam­stund­is

Bie­ber vann með Migos í tveim­ur lög­um, What You See og Look­ing for You. Keys var ekki í beinu sam­starfi við rapp­ar­ann, en hún kom fram á Donda 2-tón­leik­um Kanyes Wests í fe­brú­ar ásamt Migos. 

Miðar á minn­ing­ar­at­höfn­ina seld­ust upp sam­stund­is eft­ir að þeir fóru í sölu á þriðju­dag­inn, en íbú­ar Georgíu fengu ókeyp­is miða. Þá hef­ur komið fram að þeir sem mæta á minn­ing­ar­at­höfn­ina muni ekki fá að taka síma sína með í at­höfn­ina.

mbl.is