Sólarhringsopnun heldur ekki áfram

Sólarhringsopnun heldur ekki áfram

Sólarhringsopnun neyðarskýlanna í Reykjavíkurborg hefur liðið undir lok þar sem betra veður er í kortunum. Hinn venjulegi afgreiðslutími hefur tekið gildi og munu úrræðin framvegis standa opin frá klukkan 17 til 10 næsta dag.

Sólarhringsopnun heldur ekki áfram

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 2. janúar 2023

Neyðarskýlið við Lindargötu.
Neyðarskýlið við Lindargötu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sól­ar­hring­sopn­un neyðar­skýl­anna í Reykja­vík­ur­borg hef­ur liðið und­ir lok þar sem betra veður er í kort­un­um. Hinn venju­legi af­greiðslu­tími hef­ur tekið gildi og munu úrræðin fram­veg­is standa opin frá klukk­an 17 til 10 næsta dag.

Sól­ar­hring­sopn­un neyðar­skýl­anna í Reykja­vík­ur­borg hef­ur liðið und­ir lok þar sem betra veður er í kort­un­um. Hinn venju­legi af­greiðslu­tími hef­ur tekið gildi og munu úrræðin fram­veg­is standa opin frá klukk­an 17 til 10 næsta dag.

Rann­veig Ein­ars­dótt­ir, sviðsstjóri vel­ferðarsviðs, seg­ir að staðan sé ávallt met­in dag frá degi og að breyt­ing verði gerð á fyr­ir­komu­lag­inu sé met­in þörf á því.

Skýl­un­um var lokað í morg­un klukk­an 10, eins og af­greiðslu­tími ger­ir ráð fyr­ir, en Rann­veig tek­ur þó fram að veik­um og veik­b­urða ein­stak­ling­um sé aldrei vísað burt.

Sól­ar­hring­sopn­un frá 17. des­em­ber

Vegna kuldatíðar hef­ur sól­ar­hring­sopn­un verið í neyðar­skýl­un­um að Grandag­arði og á Lind­ar­götu frá 17. des­em­ber. Var þessi breyt­ing gerð til að koma í veg fyr­ir að ein­stak­ling­um yrði hætt við of­kæl­ingu eða al­var­leg­um slys­um. Í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg í síðasta mánuði kom fram að meta ætti stöðuna á ný þann 2. janú­ar, eða í morg­un.

„Við sjá­um það núna að það er orðið lát á þess­ari kuldatíð þannig að við för­um í eðli­leg­an opn­un­ar­tíma en eins og áður er opið hjá kaffi­stofu Sam­hjálp­ar og Hjálp­ræðis­her­inn er með opið. Fólk get­ur leitað þangað.“

Aðspurð seg­ir Rann­veig ekk­ert viðmið liggja fyr­ir um hvenær veður telst of slæmt til að sól­ar­hring­sopn­un verði tek­in upp á ný. 

„Það er metið út frá stöðunni og hvernig veðrið er. Við erum ekki al­veg með niður­neglda ákveðna gráðu. Núna er veður eins og það er oft á vet­urna. Það er ekki frost og næstu daga er ekki spáð vond­um veðrum,“ seg­ir Rann­veig og tek­ur fram að neyðar­skýl­in séu ekki bú­setu­úr­ræði. 

Neyðar­skýl­in yf­ir­full yfir hátíðarn­ar

Að sögn Rann­veig­ar var hvert ein­asta pláss í neyðar­skýl­un­um nýtt yfir hátíðarn­ar, og um­fram það en alls er gert ráð fyr­ir 25 í gist­ingu í neyðar­skýl­inu við Lind­ar­götu, 15 við Grandag­arð og 12 í konu­koti. 

Þá reynd­ist vanda­samt að manna vakt­irn­ar en það gekk þó að lok­um. Að öðru leyti hafi starf­sem­in gengið vel fyr­ir sig.

mbl.is