Bjóða upp á pitsur í gistiskýlum á bóndadaginn

Bjóða upp á pitsur í gistiskýlum á bóndadaginn

Dominos ætlar að bjóða bændum í gistiskýlum Reykjavíkur upp á pitsuveislu á bóndadaginn vegna færslu Hafdísar Helgu Sigurpálsdóttur heimspekinema í Facebook-hópnum Fjármálatips.

Bjóða upp á pitsur í gistiskýlum á bóndadaginn

Heimilislaust fólk í Reykjavík | 19. janúar 2023

Dominos ætlar að bjóða heimilislausum upp á pitsur á bóndadaginn.
Dominos ætlar að bjóða heimilislausum upp á pitsur á bóndadaginn. Samsett mynd

Dom­in­os ætl­ar að bjóða bænd­um í gisti­skýl­um Reykja­vík­ur upp á pitsu­veislu á bónda­dag­inn vegna færslu Haf­dís­ar Helgu Sig­urpáls­dótt­ur heim­spek­inema í Face­book-hópn­um Fjár­málatips.

Dom­in­os ætl­ar að bjóða bænd­um í gisti­skýl­um Reykja­vík­ur upp á pitsu­veislu á bónda­dag­inn vegna færslu Haf­dís­ar Helgu Sig­urpáls­dótt­ur heim­spek­inema í Face­book-hópn­um Fjár­málatips.

Haf­dís Helga hitti heim­il­is­laus­an mann sem var bæði kald­ur og svang­ur þannig að hún bauð hon­um að borða og skutlaði hon­um að lok­um í gisti­skýlið á Lind­ar­götu.

„Á meðan ég skutlaði hon­um fékk ég hans sögu svo­lítið. Svo hugsaði ég að það væri bónda­dag­ur á morg­un. Við eig­um að hugsa um bænd­urna okk­ar,“ seg­ir Haf­dís Helga í sam­tali við mbl.is.

„Ég gat ekki setið á mér, ég varð að gera eitt­hvað. Ég er með Tikt­ok þannig ég reyni að safna inni á því. Síðan gerði ég þenn­an póst og þetta varð eins og sinu­bruni.“

Dom­in­os var á und­an

Færsl­an sem um ræðir birt­ist í Face­book-hópn­um Fjár­málatips, þar sem Haf­dís legg­ur til söfn­un svo hægt sé að bjóða bænd­um í gisti­skýl­un­um upp á pitsu­veislu á bónda­dag­inn.

Viðbrögðin voru að fjöl­marg­ir lögðu fram aðstoð sína en bæði Pizz­an og Dom­in­os buðust til þess að sjá um mat­inn, en Dom­in­os var á und­an að sögn Haf­dís­ar.

„Við ætl­um að sjá um all­an kostnað og gefa þeim í skýl­un­um mat á morg­un,“ seg­ir Ásmund­ur Atla­son, markaðsstjóri Dom­in­os, í sam­tali við mbl.is.

„Ég fékk ábend­ingu um þenn­an póst og hafði beint sam­band við Haf­dísi og við tók­um strax ákvörðun um að við mynd­um sjá um þetta.“

Held­ur áfram að safna

Nú þegar búið er að redda matn­um þá seg­ir Haf­dís að henni langi til að setja sam­an gjafa­poka með nauðsynja­vör­um eins og tann­bursta, tann­kremi og naglaklipp­um til að gefa bænd­um sem sækja gisti­skýl­in og safn­ar Haf­dís Helga fyr­ir því með styrkj­um.

„Mun­um eft­ir bónd­un­um okk­ar,“ seg­ir Haf­dís Helga.

mbl.is