Gular viðvaranir gefnar út fyrir morgundaginn

Frost á Fróni | 21. janúar 2023

Gular viðvaranir gefnar út fyrir morgundaginn

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir fyrir Suðurland og Vesturland við Faxaflóa á morgun.

Gular viðvaranir gefnar út fyrir morgundaginn

Frost á Fróni | 21. janúar 2023

Viðvaranirnar gilda fyrir þessa tvo landshluta.
Viðvaranirnar gilda fyrir þessa tvo landshluta. Skjáskot/Veðurstofan

Veður­stof­an hef­ur gefið út gul­ar viðvar­an­ir fyr­ir Suður­land og Vest­ur­land við Faxa­flóa á morg­un.

Veður­stof­an hef­ur gefið út gul­ar viðvar­an­ir fyr­ir Suður­land og Vest­ur­land við Faxa­flóa á morg­un.

Fyr­ir Faxa­flóa tek­ur viðvör­un­in gildi klukk­an 2 í nótt og var­ir til kl. 14 á morg­un. Á Suður­landi tek­ur viðvör­un­in gildi klukk­an 4 í nótt og var­ir til kl. 17 á morg­un.

Dimm­um élj­um og mjög slæmu skyggni er spáð í báðum lands­hlut­um, en hvass­ast verður syðst á Suður­landi. 

Spáð er suðvest­an- og vestanátt og er bú­ist við að vind­hraði nái 15-25 m/​s á Suður­landi en 13-20 m/​s við Faxa­flóa.

Er fólki bent á að sýna var­kárni og fylgj­ast með veður­spám og færð.

Kóf á Suður­landi og blint yfir Holta­vörðuheiði

Ein­ar Svein­björns­son, veður­fræðing­ur Vega­gerðar­inn­ar, seg­ir að kólna muni á land­inu og frysta í kvöld og í nótt. Fyrst kólni vest­an­til og snjóa muni þar seint í kvöld. Él verði áfram til morg­uns.

„Um miðjan dag á morg­un er út­lit fyr­ir storm og kóf á Suður­landi, meðal ann­ars aust­ur yfir Hell­is­heiði og allt til Vík­ur. Eins verður blint yfir Holta­vörðuheiði, einkum frá kl. 12 til 18,“ seg­ir í viðvör­un frá Vega­gerðinni.

mbl.is