Formleg ákæra gefin út

Alec Baldwin | 1. febrúar 2023

Formleg ákæra gefin út

Leikarinn Alec Baldwin var í gær formlega ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Er hann ákærður fyrir að hafa orðið valdur að dauða tökumannsins Halynu Hutchins sem lést við tökur á kvikmyndinni Rust.

Formleg ákæra gefin út

Alec Baldwin | 1. febrúar 2023

Formleg ákæra hefur verið gefin út á hendur Alec Baldwins …
Formleg ákæra hefur verið gefin út á hendur Alec Baldwins vegna dauða Halynu Hutchins. AFP/Skrifstofa lögreglunnar í Santa Fe

Leik­ar­inn Alec Baldw­in var í gær form­lega ákærður fyr­ir mann­dráp af gá­leysi. Er hann ákærður fyr­ir að hafa orðið vald­ur að dauða töku­manns­ins Halynu Hutchins sem lést við tök­ur á kvik­mynd­inni Rust.

Leik­ar­inn Alec Baldw­in var í gær form­lega ákærður fyr­ir mann­dráp af gá­leysi. Er hann ákærður fyr­ir að hafa orðið vald­ur að dauða töku­manns­ins Halynu Hutchins sem lést við tök­ur á kvik­mynd­inni Rust.

Ákær­an var gef­in út í New Mexí­kó-ríki í gær en áður hafði komið fram í frétt­um að sak­sókn­ari í um­dæm­inu hyggðist leggja fram ákær­una gegn leik­ar­an­um vegna mann­dráps af gá­leysi.

„Í dag stig­um við enn eitt mik­il­vægt skref í átt að rét­tæti fyr­ir Halynu Hutchins,“ sagði Mary Carmack-Altwies, sak­sókn­ari í New Mexí­kó þegar ákær­an var gef­in út.

Upp­tek­inn í sím­an­um

Fram kem­ur að Baldw­in hafi verið ann­ars hug­ar þegar hann átti að vera að læra um ör­yggis­atriði er tengd­ust skot­vopn­um sem notuð voru við tök­urn­ar. Hafi hann verið í sím­an­um að tala við fjöl­skyldu sína.

Hann hafi aðeins eytt um hálfri klukku­stund á nám­skeiðinu sem stóð yfir í klukku­stund. Hanna Gutier­rez-Reed var ábyrgðarmaður skot­vopna á tökustað. Hún var líka ákærð fyr­ir mann­dráp af gá­leysi á sama tíma og Baldw­in.

Ef þau verða sak­felld eiga þau yfir höfði sér allt að 18 mánaða fang­els­is­dóm og 5 þúsund banda­ríkja­dala sekt. Vegna þess að skot­vopn koma við sögu í mál­inu gætu þau fengið allt upp í fimm ára fang­els­is­dóm.

Baldw­in hef­ur ít­rekað í fjöl­miðlum og vitn­is­b­urði sín­um að hon­um hafi verið sagt að byss­an væri ekki hlaðin og að hann hafi ekki tekið í gikk­inn.

mbl.is