Segir Kínverja ætla að vopna Rússa

Úkraínustríðið | 19. febrúar 2023

Segir Kínverja ætla að vopna Rússa

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir kínversk stjórnvöld hafa í hyggju að veita Rússum aukinn vopnakost til að beita í innrás þeirra í Úkraínu. 

Segir Kínverja ætla að vopna Rússa

Úkraínustríðið | 19. febrúar 2023

Anthony Blinken á öryggisráðstefnunni í Munchen.
Anthony Blinken á öryggisráðstefnunni í Munchen. AFP

Ant­ony Blin­ken, ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, seg­ir kín­versk stjórn­völd hafa í hyggju að veita Rúss­um auk­inn vopna­kost til að beita í inn­rás þeirra í Úkraínu. 

Ant­ony Blin­ken, ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna, seg­ir kín­versk stjórn­völd hafa í hyggju að veita Rúss­um auk­inn vopna­kost til að beita í inn­rás þeirra í Úkraínu. 

Þetta sagði Blin­ken í viðtali við CBS-sjón­varps­stöðina en þar hélt hann því einnig fram að Kín­verj­ar væru nú þegar að veita Rúss­um óbein­an stuðning í stríðsaðgerðum þeirra síðar­nefndu.

Kín­verj­ar segj­ast enga beiðni hafa fengið

Blin­ken er stadd­ur í Munchen á fjöl­sóttri ör­ygg­is­ráðstefnu. Hann sagði þar að þess­ar fyr­ir­ætlan­ir geti haft al­var­leg­ar af­leiðing­ar í för með sér fyr­ir Kín­verja en sam­bandi þeirra við Banda­rík­in hef­ur hrakað síðustu ár.

Í frétt BBC um málið seg­ir að kín­versk stjórn­völd þver­taki fyr­ir að beiðnir hafi borist frá Rúss­um um her­gagn­astuðning. Kína er eitt af þeim ríkj­um sem hef­ur enn ekki for­dæmt inn­rás Rússa í Úkraínu. 

Sam­band Banda­ríkj­anna og Kína myndi bíða enn frek­ari hnekki ef fyr­ir­ætlan­ir þær sem Blin­ken vís­ar til reyn­ast á rök­um reist­ar. Sam­skipt­in eru sér­stak­lega spennuþrung­in eft­ir að banda­rísk stjórn­völd skutu niður loft­belg sem þau halda fram að hafi komið frá kín­versku leyniþjón­ust­unni. 

mbl.is