Kínverjar segja ásakanirnar rangar

Úkraínustríðið | 20. febrúar 2023

Kínverjar segja ásakanirnar rangar

Kínversk yfirvöld saka Bandaríkjamenn um að fara með rangt mál en í gær sagði Ant­ony Blin­ken ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna að Kínverjar væru að íhuga að senda her­gögn til Rússa til þess að aðstoða þá við inn­rás­ina í Úkraínu.

Kínverjar segja ásakanirnar rangar

Úkraínustríðið | 20. febrúar 2023

Stríðið í Úkraínu hefur nú geisað í tæplega ár.
Stríðið í Úkraínu hefur nú geisað í tæplega ár. AFP/Yasuyoshi Chiba

Kín­versk yf­ir­völd saka Banda­ríkja­menn um að fara með rangt mál en í gær sagði Ant­ony Blin­ken ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna að Kín­verj­ar væru að íhuga að senda her­gögn til Rússa til þess að aðstoða þá við inn­rás­ina í Úkraínu.

Kín­versk yf­ir­völd saka Banda­ríkja­menn um að fara með rangt mál en í gær sagði Ant­ony Blin­ken ut­an­rík­is­ráðherra Banda­ríkj­anna að Kín­verj­ar væru að íhuga að senda her­gögn til Rússa til þess að aðstoða þá við inn­rás­ina í Úkraínu.

„Það eru Banda­rík­in, ekki Kína, sem senda stöðugt vopn á víg­völl­inn,“ svaraði Wang Wen­bin, talsmaður kín­verska ut­an­rík­is­ráðuneyt­is­ins, er hann var spurður út í ásak­an­ir Blin­kens. 

„Við hvetj­um Banda­ríkja­menn til að líta í eig­in barm og gera meira til þess að stöðva stríðið, stuðla að friði og friðarviðræðum, og hætta að kenna öðrum um og breiða út fals­frétt­ir.“ 

Blin­ken sagði í frétta­skýr­ingaþætt­in­um Face the Nati­on á CBS-sjón­varps­stöðinni banda­rísku að á meðal þess sem Kín­verj­ar væru að íhuga væri að senda allt frá skot­fær­um til vopn­anna sjálfra.

Wen­bin sagði að stefna Kín­verja hvað viðkæmi stríðinu í Úkraínu væri að stuðla að friði og friðarviðræðum.

mbl.is