Áfangasigur fyrir Baldwin

Alec Baldwin | 21. febrúar 2023

Áfangasigur fyrir Baldwin

Saksóknari í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum hefur látið niður falla hluta ákæru gegn leikaranum Alec Baldwin. Er það sá hluti er snýr að skotvopnaburði. Ef Baldwin hefði verið sakfelldur fyrir að handleika skotvopnið hefði hann átt yfir höfði sér lengri fangelsisdóm. 

Áfangasigur fyrir Baldwin

Alec Baldwin | 21. febrúar 2023

Alec Baldwin.
Alec Baldwin. AFP

Sak­sókn­ari í Nýju Mexí­kó í Banda­ríkj­un­um hef­ur látið niður falla hluta ákæru gegn leik­ar­an­um Alec Baldw­in. Er það sá hluti er snýr að skot­vopna­b­urði. Ef Baldw­in hefði verið sak­felld­ur fyr­ir að hand­leika skot­vopnið hefði hann átt yfir höfði sér lengri fang­els­is­dóm. 

Málið varðar and­lát töku­manns­ins Halynu Hutchins við tök­ur á kvik­mynd­inni Rust í októ­ber 2021.

Á 18 mánaða fang­elsi yfir höfði sér

Baldw­in er samt sem áður ákærður í tveim­ur liðum fyr­ir mann­dráp af gá­leysi og á yfir höfði sér allt að 18 mánaða fang­elsi verði hann sak­felld­ur.

Ef hann hefði verið sak­felld­ur fyr­ir að bera skot­vopnið hefði það þýtt að minnsta kosti fimm ára fang­elsis­vist til viðbót­ar. 

Sak­sókn­ar­inn Heather Brewer í Santa Fe sagði að embættið hefði ákveðið að láta þenn­an hluta falla niður til að forðast það að málið dræg­ist á lang­inn. 

Leik­stjóri Rust, Joel Souza, varð einnig fyr­ir skoti í tök­um. Hann særðist og var flutt­ur á sjúkra­hús í kjöl­farið. 

mbl.is