Tölvuþrjótar hrella Rússa

Rússland | 28. febrúar 2023

Tölvuþrjótar hrella Rússa

Rússnesk stjórnvöld greindu frá því í dag að tölvuþrjótar hefðu náð að birta tilkynningar um yfirvofandi loftárásir í gegnum nokkrar sjónvarps- og útvarpsstöðvar í landinu. 

Tölvuþrjótar hrella Rússa

Rússland | 28. febrúar 2023

Tilkynningum um yfirvofandi loftárásir var út- og sjónvarpað víða í …
Tilkynningum um yfirvofandi loftárásir var út- og sjónvarpað víða í Rússlandi. Rússnesk stjórnvöld segja ekkert hæft í þessum tilkynningum sem tölvuþrjótar beri ábyrgð á. AFP

Rúss­nesk stjórn­völd greindu frá því í dag að tölvuþrjót­ar hefðu náð að birta til­kynn­ing­ar um yf­ir­vof­andi loft­árás­ir í gegn­um nokkr­ar sjón­varps- og út­varps­stöðvar í land­inu. 

Rúss­nesk stjórn­völd greindu frá því í dag að tölvuþrjót­ar hefðu náð að birta til­kynn­ing­ar um yf­ir­vof­andi loft­árás­ir í gegn­um nokkr­ar sjón­varps- og út­varps­stöðvar í land­inu. 

Slík­ar viðvar­arn­ir eru al­geng­ar í Úkraínu vegna inn­rás­ar Rússa, en áhrif stríðsrekst­urs­ins eru aft­ur á móti mun tak­markaðri í Rússlandi, nema þó helst á þeim svæðum sem liggja næst Úkraínu. 

Neyðarráðuneyti Rúss­lands seg­ir að tölvuþrjót­ar hafi brotið sér leið inn í tölvu­kerfi stöðvanna og náð að senda út slík­ar viðvar­an­ir um yf­ir­vof­andi loft­árás­ir. Ráðuneytið tek­ur fram að þær eigi enga stoð í raun­veru­leik­an­um. 

Fram kem­ur í rúss­nesk­um fjöl­miðlum að til­kynn­ing­un­um hafi verið út- og sjón­varpað í héruðunum Belg­orod og Voronezh, sem liggja að Úkraínu. Einnig í ná­grenni við Moskvu og St. Pét­urs­borg, sem og á Krímskaga, sem Rúss­ar inn­limuðu árið 2014. 

Ráðuneytið seg­ir enn frem­ur að svipuð tölvu­árás hefði verið gerð í liðinni viku sem leiddi til þess að loft­varnaflaut­ur ómuðu um tíma víða í Rússlandi. 

Árás­irn­ar beind­ust ein­vörðungu að einka­rekn­um út­varps- og sjón­varps­stöðvum. 

mbl.is