Um 43% félagsmanna vildu fella samninginn

Kjaramál sjómanna | 12. mars 2023

Um 43% félagsmanna vildu fella samninginn

Skipstjórnarmenn samþykktu nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi með rúmum helmingi atkvæða. 413 voru á kjörskrá og var kjörsókn rúmlega 83%. Með samningnum greiddu 55,39% félagsmanna en 42,57% vildu fella samninginn.  

Um 43% félagsmanna vildu fella samninginn

Kjaramál sjómanna | 12. mars 2023

Árni Sverrisson, formaður skipstjórnarmanna.
Árni Sverrisson, formaður skipstjórnarmanna. Ljósmynd/Aðsend

Skip­stjórn­ar­menn samþykktu nýj­an kjara­samn­ing við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi með rúm­um helm­ingi at­kvæða. 413 voru á kjör­skrá og var kjör­sókn rúm­lega 83%. Með samn­ingn­um greiddu 55,39% fé­lags­manna en 42,57% vildu fella samn­ing­inn.  

Árni Sverris­son, formaður skip­stjórn­ar­manna, seg­ir flesta for­menn og samn­inga­nefnd­ir fé­lag­anna hafa mælt með því að samn­ing­ur­inn yrði samþykkt­ur. Öll fé­lög­in sem áttu aðild að samn­ingn­um við SFS felldu samn­ing­inn að und­an­skildu Félagi skip­stjórn­ar­manna þar sem samn­ing­ur­inn var samþykkt­ur. 

„Samn­ing­ur­inn var felld­ur af öðrum fé­lög­um en okk­ur, það er eins og geng­ur og ger­ist í lýðræðis­leg­um at­kvæðagreiðslum. Nú þarf bara að greina hvað menn voru ósátt­ir við og kanna hvort hægt er að ná sam­komu­lagi,“ seg­ir Árni.  

Þátta­skil um ára­mót

Sjó­menn hafa verið samn­ings­laus­ir frá ár­inu 2019 og seg­ir Árni að það hafi verið vilji allra að semja.    

Viðræðurn­ar höfðu staðið yfir í þrjú ár við SFS og á þeim tíma hafi verið fundað stíft til að reyna að koma á kjara­samn­ingi án ár­ang­urs. Um ára­mót­in urðu þátta­skil, þá var ákveðið að láta á það reyna hvort við vær­um að fara að semja eða ekki. Niðurstaðan var eft­ir stíf fund­ar­höld í janú­ar að skrifað var und­ir samn­ing 9. fe­brú­ar sem skip­stjórn­ar­menn ein­ir samþykktu, seg­ir Árni.  

mbl.is