Fyrsta stig gagnsóknar Úkraínu hafið

Dagmál | 9. maí 2023

Fyrsta stig gagnsóknar Úkraínu hafið

Fyrsta stig gagnsóknar Úkraínu er hafið. Til marks um það eru sprengingar Rússlandsmegin á Krímskaga og birgðastöðvar á bak við víglínu Rússa. Þar með er verið að móta komandi vígvöll. Þetta segir Stefán Gunnar Sveinsson blaðamaður á Morgunblaðinu, sem fjallað hefur um átökin í Úkraínu frá upphafi. 

Fyrsta stig gagnsóknar Úkraínu hafið

Dagmál | 9. maí 2023

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Fyrsta stig gagn­sókn­ar Úkraínu er hafið. Til marks um það eru spreng­ing­ar Rúss­lands­meg­in á Krímskaga og birgðastöðvar á bak við víg­línu Rússa. Þar með er verið að móta kom­andi víg­völl. Þetta seg­ir Stefán Gunn­ar Sveins­son blaðamaður á Morg­un­blaðinu, sem fjallað hef­ur um átök­in í Úkraínu frá upp­hafi. 

    Fyrsta stig gagn­sókn­ar Úkraínu er hafið. Til marks um það eru spreng­ing­ar Rúss­lands­meg­in á Krímskaga og birgðastöðvar á bak við víg­línu Rússa. Þar með er verið að móta kom­andi víg­völl. Þetta seg­ir Stefán Gunn­ar Sveins­son blaðamaður á Morg­un­blaðinu, sem fjallað hef­ur um átök­in í Úkraínu frá upp­hafi. 

    Stefán er gest­ur þeirra Gísla Freys Val­dórs­son­ar og Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í þætti dags­ins af Dag­mál­um. Hann seg­ir mik­il­vægt að gefa Úkraínu­her tíma til þess að tíma­setja gagn­sókn­ina rétt. Þótt blaðamenn á Vest­ur­lönd­um geri mikið úr því að ekk­ert hafi orðið ágengt í þess­um efn­um enn sem komið er, þýði það í raun ekki neitt.

    Mestu skipt­ir að ef gagn­sókn­in heppn­ast þá gæti það bundið enda á stríðið. Sömu­leiðis gætu mikl­ar ófar­ir, þar sem yf­ir­ráðum Rússa á Krímskaga væri ógnað, leitt til rósta í Rússlandi og breyt­inga þar í landi. Viðtalið við Stefán Gunn­ar er hluti af flokki viðtala á vett­vangi Dag­mála sem til­einkuð eru ör­ygg­is- og varn­ar­mál­um.

    Í brot­inu ræðir hann um gagn­sókn Úkraínu­manna og fær­ir rök fyr­ir því að fyrstu stig henn­ar séu haf­in. Áskrif­end­ur geta horft á þátt­inn í fullri lengd eða hlustað á hann í hlaðvarps­formi.

    Pólskur Leopard-skriðdreki sambærilegur þeim sem Úkraínumenn hafa nú til umráða, …
    Pólsk­ur Leop­ard-skriðdreki sam­bæri­leg­ur þeim sem Úkraínu­menn hafa nú til umráða, en vopna­send­ing­ar lýðræðis­ríkja til Úkraínu­manna eru grund­völl­ur fyr­ir gagn­sókn­inni. AFP/​Wotj­ek Radw­anski
    mbl.is