Skorar á útgerðarmenn að semja við sjómenn

Kjaramál sjómanna | 4. júní 2023

Skorar á útgerðarmenn að semja við sjómenn

Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM, segir í pistli í sjómannadagsblaði 200 mílna skammarlegt að útgerðarmenn treysti sér ekki til að semja við sjómenn þrátt fyrir að útgerðirnar séu að skila sögulegum hagnaði.

Skorar á útgerðarmenn að semja við sjómenn

Kjaramál sjómanna | 4. júní 2023

Guðmundur Helgi Þórarinsson.
Guðmundur Helgi Þórarinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM, seg­ir í pistli í sjó­mannadags­blaði 200 mílna skamm­ar­legt að út­gerðar­menn treysti sér ekki til að semja við sjó­menn þrátt fyr­ir að út­gerðirn­ar séu að skila sögu­leg­um hagnaði.

Guðmund­ur Helgi Þór­ar­ins­son, formaður VM, seg­ir í pistli í sjó­mannadags­blaði 200 mílna skamm­ar­legt að út­gerðar­menn treysti sér ekki til að semja við sjó­menn þrátt fyr­ir að út­gerðirn­ar séu að skila sögu­leg­um hagnaði.

„Ég skora á út­gerðar­menn að leggja sig fram við að ná samn­ing­um við þessa lyk­il­starfs­menn sína,“ skrif­ar hann.

Pist­ill Guðmund­ar í heild sinni:

Sú var tíðin að sjó­mannadag­ur­inn var hald­inn hátíðleg­ur um allt land; út­gerð var í öll­um bæj­um og þorp­um hring­inn í kring­um landið. All­ir höfðu teng­ingu við sjáv­ar­út­veg­inn og sjó­menn voru hetj­ur hafs­ins sem drógu björg í bú. Það er af sem áður var. Nú er svo komið að hátíðahöld vegna sjó­mannadags­ins eru víða ekki nema svip­ur hjá sjón. Bát­arn­ir eru færri, stærri og af­kasta­meiri, líkt og út­gerðirn­ar sjálf­ar. Excel-út­reikn­ing­ar ráða för og allt snýst um að há­marka gróðann. Mann­legi hlut­inn, sjarm­inn við veiðarn­ar, er horf­inn.

Nú er að renna upp fjórði sjó­mannadag­ur­inn síðan kjara­samn­ing­ar sjó­manna og SFS runnu síðast út. Að vísu skrifuðu öll stétt­ar­fé­lög sjó­manna und­ir nýj­an kjara­samn­ing 9. fe­brú­ar síðastliðinn, þar sem fé­lög­in töldu ekki lengra kom­ist án átaka. Það er skemmst frá því að segja að öll fé­lög­in, ef Fé­lag skip­stjórn­ar­manna er und­an­skilið, felldu samn­ing­inn. Það er ótrú­legt að út­gerðar­menn, sem marg­ir hverj­ir reka fyr­ir­tæki sem skila mikl­um arði ár frá ári, geti ekki náð sátt­um við sjó­menn sína, þá starfs­menn sem afla verðmæt­anna.

Sögu­leg­ur hagnaður

Hagnaður út­gerðarfé­laga fer hækk­andi ár frá ári. Á síðasta ári nam rekstr­ar­hagnaður Brims fyr­ir af­skrift­ir og fjár­magnsliði (EBITDA hagnaður) ígildi 17 millj­arða króna. Hann jókst um rúm 25% á milli ára. Þá nam hagnaður Síld­ar­vinnsl­unn­ar á síðasta ári um 10,2 millj­örðum króna. Eigið fé sam­stæðunn­ar var í lok árs 83 millj­arðar króna. Gunnþór Ingva­son, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unn­ar, hef­ur látið hafa eft­ir sér að árið 2022 sé besta rekstr­ar­ár í sögu Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Árið hafi ein­kennst af góðum gangi í veiðum og vinnslu.

Það eru ekki bara stóru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­in sem skila góðum hagnaði. Loðnu­vinnsl­an á Fá­skrúðsfirði hef­ur aldrei skilað meiri hagnaði en í fyrra; þrem­ur og hálf­um millj­arði króna. Það er lang­besta rekstr­ar­ár fyr­ir­tæk­is­ins.

Það er skamm­ar­legt að þrátt fyr­ir allt þetta treysti út­gerðar­menn sér ekki til að semja við sjó­menn. Ég skora á út­gerðar­menn að leggja sig fram við að ná samn­ing­um við þessa lyk­il­starfs­menn sína. Það er nóg til.

Að lok­um vil ég óska samn­ings­laus­um sjó­mönn­um og fjöl­skyld­um þeirra inni­lega til ham­ingju með dag­inn.

mbl.is