Einkaþota Dan Bilzerian á Keflavíkurflugvelli

Frægir á Íslandi | 7. júní 2023

Einkaþota Dan Bilzerian á Keflavíkurflugvelli

Einkaþota glaumgosans Dan Bilzerian lenti á Keflavíkurflugvelli rétt í þessu. Þotan er svört á litinn og er merkt Ignite, vörumerki í eigu Bilzerian, á stélinu. 

Einkaþota Dan Bilzerian á Keflavíkurflugvelli

Frægir á Íslandi | 7. júní 2023

Pókerspilarinn og glaumgosinn Dan Bilzerian.
Pókerspilarinn og glaumgosinn Dan Bilzerian. AFP

Einkaþota glaum­gos­ans Dan Bilzer­i­an lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli rétt í þessu. Þotan er svört á lit­inn og er merkt Ignite, vörumerki í eigu Bilzer­i­an, á stél­inu. 

Einkaþota glaum­gos­ans Dan Bilzer­i­an lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli rétt í þessu. Þotan er svört á lit­inn og er merkt Ignite, vörumerki í eigu Bilzer­i­an, á stél­inu. 

Þotan sem um ræðir er af gerðinni Gulf­stream G-IV og er met­in á sex millj­ón­ir banda­ríkja­dala, eða sem nem­ur 845,4 millj­ón­um króna á gengi dags­ins í dag. 

Aðsend mynd af einkaþotu Bilzerian á Keflavíkurflugvelli.
Aðsend mynd af einkaþotu Bilzer­i­an á Kefla­vík­ur­flug­velli. Ljós­mynd/​Aðsend

Virðist vera hrif­inn af Íslandi

Ekki er víst hvort kapp­inn sjálf­ur sé á land­inu, en hann hef­ur þó tvisvar áður heim­sótt Ísland. Árið 2019 fór hann meðal ann­ars í jeppa­ferð um há­lendið og heim­sótti kraft­lyft­ing­ar­mann­inn Hafþór Júlí­us Björns­son. 

Þar áður kom Bilzer­i­an til lands­ins árið 2016, en þá skellti hann sér á vélsleða á Lang­jök­ul og virt­ist hæst­ánægður með dvöl sína.

mbl.is