Tapa peningum hvern mánuð án kjarasamnings

Kjaramál sjómanna | 23. júní 2023

Tapa peningum hvern mánuð án kjarasamnings

Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar er ekki ánægður með niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna í mars síðastliðnum og bindur vonir við að hægt verði að greiða atkvæði um nýjan kjarasamning fyrir lok september, að því er fram kom í viðtali sem birt var í 200 mílum.

Tapa peningum hvern mánuð án kjarasamnings

Kjaramál sjómanna | 23. júní 2023

Trausti Jörundarson vill kjósa aftur um kjarasamning með haustinu.
Trausti Jörundarson vill kjósa aftur um kjarasamning með haustinu. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Formaður Sjó­manna­fé­lags Eyja­fjarðar er ekki ánægður með niður­stöður at­kvæðagreiðslu um kjara­samn­ing sjó­manna í mars síðastliðnum og bind­ur von­ir við að hægt verði að greiða at­kvæði um nýj­an kjara­samn­ing fyr­ir lok sept­em­ber, að því er fram kom í viðtali sem birt var í 200 míl­um.

Formaður Sjó­manna­fé­lags Eyja­fjarðar er ekki ánægður með niður­stöður at­kvæðagreiðslu um kjara­samn­ing sjó­manna í mars síðastliðnum og bind­ur von­ir við að hægt verði að greiða at­kvæði um nýj­an kjara­samn­ing fyr­ir lok sept­em­ber, að því er fram kom í viðtali sem birt var í 200 míl­um.

Kjara­samn­ing­ur­inn sem bor­inn var und­ir sjó­menn var felld­ur með hátt í 67% at­kvæða, en samn­ing­ar hafa verið laus­ir frá því í árs­lok 2019.

Trausti Jör­und­ar­son, formaður Sjó­manna­fé­lags Eyja­fjarðar, seg­ir í viðtal­inu von­brigði að samn­ing­ur­inn skyldi ekki hljóta samþykki fé­lags­manna en bæt­ir við að kjör­sókn hafi ekki verið nema 47%.

Skipverjar á Kaldbak EA1 splæsa upp á togvír. Í nýjum …
Skip­verj­ar á Kald­bak EA1 splæsa upp á tog­vír. Í nýj­um kjara­samn­ingi voru rétt­indi vegna veik­inda og slysa auk­in. mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son

Grunn­ur að samn­ingi

„Það ligg­ur fyr­ir ágæt­is grunn­ur sem semja má nán­ar um og spurn­ing hvort að hægt sé að breyta ein­hverj­um atriðum sem munu stuðla að því að samn­ing­ur­inn fari auðveld­ar í gegn­um at­kvæðagreiðslu hjá sjó­mönn­um. Ábyrgðin ligg­ur hjá okk­ur öll­um sem kom­um að samn­inga­gerðinni og væri óðs manns æði að láta kjara­samn­ings­mál­in standa óhreyfð í lengri tíma. Lít ég svo á að fyr­ir hvern mánuð sem líður án þess að nýr samn­ing­ur taki gildi, séu mín­ir fé­lags­menn að tapa pen­ing­um og fara á mis við mik­il­væg rétt­indi,“ seg­ir Trausti.

„Núna erum við að sigla inn í sum­arið og litl­ar lík­ur á að mik­il hreyf­ing verði á mál­inu á meðan veiðar standa hæst, en kannski að okk­ur auðnist að keyra þetta í gegn í ág­úst eða í byrj­un sept­em­ber. Ættum við helst að ná að finna lausn fyr­ir ára­mót­in, og helst ná að halda at­kvæðagreiðslu fyr­ir lok sept­em­ber.“

Viðtalið við Trausta má lesa í heild sini í síðasta blaði 200 mílna.

mbl.is