Amy Poehler nýtur sólarinnar á Íslandi

Stjörnur á ferð og flugi | 10. júlí 2023

Amy Poehler nýtur sólarinnar á Íslandi

Bandaríska leikkonan Amy Poehler virðist vera stödd á Íslandi ef marka má nýjasta myndskeið hennar á TikTok. 

Amy Poehler nýtur sólarinnar á Íslandi

Stjörnur á ferð og flugi | 10. júlí 2023

Leikkonan Amy Poehler virðist vera stödd á landinu.
Leikkonan Amy Poehler virðist vera stödd á landinu. Jamie McCarthy

Banda­ríska leik­kon­an Amy Poehler virðist vera stödd á Íslandi ef marka má nýj­asta mynd­skeið henn­ar á TikT­ok. 

Banda­ríska leik­kon­an Amy Poehler virðist vera stödd á Íslandi ef marka má nýj­asta mynd­skeið henn­ar á TikT­ok. 

Í mynd­skeiðinu sýndi Poehler frá hinum ýmsu stöðum á Íslandi, til dæm­is Bláa Lón­inu, Geysi og Skóla­vörðustíg. Hún virðist hafa komið til lands­ins á hár­rétt­um tíma og notið veður­blíðunn­ar til hins ýtr­asta. Þá virt­ist hún einnig hafa farið í báts­ferð, fjór­hjóla­ferð og upp á jök­ul. 

Poehler er lík­lega hve þekkt­ust fyr­ir að fara með hlut­verk Leslie Knope í gam­anþáttaröðunum Parks and Recreati­on. Hún var einnig meðlim­ur í leik­hóp Sat­ur­day Nig­ht Live frá 2001 til 2008 og hef­ur einnig farið með hlut­verk í kvik­mynd­um á borð við Mean Gir­ls, Baby Mama og Bla­des of Glory.

mbl.is