Skiluðu skömminni á Sauðárkróki

MeT­oo - #Ég líka | 22. júlí 2023

Skiluðu skömminni á Sauðárkróki

Tanja Ísfjörð, aðgerðasinni og skipuleggjandi Druslugöngunnar á Sauðárkróki, segist hafa fundið vel fyrir því í Druslugöngunni í ár hversu þreytt fólk er orðið á þögguninni sem fengið hefur að líðast í bænum undanfarin ár.

Skiluðu skömminni á Sauðárkróki

MeT­oo - #Ég líka | 22. júlí 2023

Talsverður fjöldi mætti á Druslugönguna á Sauðárkróki í dag.
Talsverður fjöldi mætti á Druslugönguna á Sauðárkróki í dag. Ljósmynd/Aðsend

Tanja Ísfjörð, aðgerðasinni og skipu­leggj­andi Druslu­göng­unn­ar á Sauðár­króki, seg­ist hafa fundið vel fyr­ir því í Druslu­göng­unni í ár hversu þreytt fólk er orðið á þögg­un­inni sem fengið hef­ur að líðast í bæn­um und­an­far­in ár.

Tanja Ísfjörð, aðgerðasinni og skipu­leggj­andi Druslu­göng­unn­ar á Sauðár­króki, seg­ist hafa fundið vel fyr­ir því í Druslu­göng­unni í ár hversu þreytt fólk er orðið á þögg­un­inni sem fengið hef­ur að líðast í bæn­um und­an­far­in ár.

Tanja seg­ist ekki hafa tölu á því hversu marg­ar drusl­ur gengu um göt­ur Sauðár­króks í dag. 

Vald­efl­andi og gott í hjartað

„And­inn var rosa­lega góður. Við feng­um frá­bært veður og það voru öll svo til­bú­in í þetta. Fólk skilaði skömm­inni og talaði um rót­gróna vanda­malið sem kyn­ferðisof­beldi er. Það var svo áþreif­an­legt hvað fólk var orðið þreytt á þögg­un­inni sem hef­ur fengið að líðast hérna heima á Krók,“ seg­ir Tanja í sam­tali við mbl.is.

„Það var mik­il þreyta og yf­ir­snún­ing­ur hjá mér þannig ég er svona rétt að meðtaka allt núna. Ég var orðin smá stressuð því mikið af fólki sem hefði mætt var ekki heima en síðan varð þetta bara allt sam­an frá­bært, vald­efl­andi og gott i hjartað,“ seg­ir Tanja. 

Hún seg­ist hvergi nærri hætt og að þær Erla Ein­ars­dótt­ir, sem skipu­lögðu göng­una, ætli að gera hana að föst­um lið hvert sum­ar á Sauðár­króki.

Druslu­gang­an fór einnig fram í Reykja­vík í dag.

Tanja Ísfjörð söng við bakaríið.
Tanja Ísfjörð söng við baka­ríið. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is