Hætta á stórslysi ef Öskju verður ekki lokað

Askja | 1. ágúst 2023

Hætta á stórslysi ef Öskju verður ekki lokað

„Ef þetta kemur núna þá erum við með fullt af ferðamönnum þarna upp frá. Það gæti orðið katastrófa ef það kæmi gos núna. Þetta eru hlutir sem við verðum að hugsa um.“

Hætta á stórslysi ef Öskju verður ekki lokað

Askja | 1. ágúst 2023

Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir það ekki æskilegt að vera við …
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir það ekki æskilegt að vera við Öskju. Samsett mynd

„Ef þetta kem­ur núna þá erum við með fullt af ferðamönn­um þarna upp frá. Það gæti orðið kat­ast­rófa ef það kæmi gos núna. Þetta eru hlut­ir sem við verðum að hugsa um.“

„Ef þetta kem­ur núna þá erum við með fullt af ferðamönn­um þarna upp frá. Það gæti orðið kat­ast­rófa ef það kæmi gos núna. Þetta eru hlut­ir sem við verðum að hugsa um.“

Þetta seg­ir Þor­vald­ur Þórðar­son eld­fjalla­fræðing­ur og vís­ar til þess að mikið landris hef­ur mælst við eld­stöðina Öskju.

Þrír senti­metr­ar á mánuði

Landið við Öskju hef­ur risið um 60 sentí­metra frá því að landris tók fyrst að mæl­ast þar í ág­úst árið 2021 og hef­ur risið um hátt í 30 sentí­metra frá því í sept­em­ber á síðasta ári, sem nem­ur um þrem­ur sentí­metr­um á mánuði.

„Þetta er eitt af því sem ég hef mjög mikl­ar áhyggj­ur af. Það er búið að vera mjög mikið landris í miðri Öskjunni. Mér finnst þetta vera merki um það að Askja sé að búa sig und­ir eitt­hvað.“

Vit­um hver enda­lok­in yrðu

Hann bend­ir á að landrisið eigi sér stað á nokkuð grunnu dýpi sem bend­ir frek­ar til þess að um sé að ræða súra kviku sem gæti leitt til öskugoss. Þor­vald­ur ít­rek­ar þó að hann sé ekki að segja að eld­gos við Öskju sé vænt­an­legt en bend­ir á að landrisið sé vís­bend­ing um að eitt­hvað sé í aðsigi. 

„Og við erum að láta er­lenda ferðamenn labba þarna inn og út. Eins og er myndi ég loka Öskju. Ef það yrði gos með allt þetta fólk þarna á svæðinu þá vit­um við al­veg hver enda­lok­in eru. Eig­um við að taka svo­leiðis sénsa?“

Yf­ir­völd þurfi að grípa inn í

Hann seg­ir það ekki ásætt­an­lega áhættu að leyfa aðgang ferðamanna að svæðinu og biðlar því til yf­ir­valda að loka svæðinu í kring­um Öskju áður en það yrði of seint.

„Ég er all­ur fyr­ir ásætt­an­lega áhættu og að fólk fái að gera upp hug sinn ef það er upp­lýst um hverj­ar áhætt­urn­ar eru,“ seg­ir hann.

„En á meðan við höf­um þetta landris inn í miðri öskj­unni þá ætt­um við að loka Öskju. Ég ætla ekki að segja fólki hvað það á að velja en per­sónu­lega finnst mér að í svona til­fell­um þá þurfi yf­ir­völd að grípa inn í og hafa vitið fyr­ir flest­um.“

Stór­slysið á Nýja Sjálandi má ekki end­ur­taka sig

Hann seg­ir það mik­il­vægt að stjórn­völd komi í veg fyr­ir að stór­slys verði á Íslandi eins og varð í Hvítu­eyju við Nýja-Sjá­land árið 2019.

Alls lést 21 eft­ir að eld­fjall á Hvítu­eyju gaus í des­em­ber það ár en 47 manns, aðallega ástr­alsk­ir ferðamenn, voru á eyj­unni þegar eld­gosið varð.

„Ég vann í rann­sókn­um á Nýja Sjálandi og var meðal ann­ars að vinna í rann­sókn­um á Hvítu­eyju og þar gýs mjög oft. Við fór­um kannski tvisvar eða þris­var á ári að gera mæl­ing­ar og rann­sókn­ir. Núna á seinni tíð voru þeir með dag­leg­ar ferðir með ferðamönn­um á stað sem við vit­um að gýs einu sinni til tvisvar á ári.“

Hann hugsi oft til hörm­ung­anna á Hvítu­eyju þegar hann leiði hug­ann að Öskju.

„Ef þú ert með fólk á staðnum og ferð þarna á hverj­um ein­asta degi, þá eru lík­urn­ar á því að þú lend­ir í ein­hverj­um ógöng­um mjög háar. Og það gerðist.“

mbl.is