Yfirborðsbreytingar við Öskju

Askja | 13. ágúst 2023

Yfirborðsbreytingar við Öskju

Veðurstofa Íslands hefur fengið ábendingu um skammlífan strók sem gæti verið til marks um aukna gufuvirkni í Bátshrauni austan við Víti. Þá mældist vatnshiti í Víti 27 gráður eða um 9 gráðum hærri en hann hefur mælst áður í sumar.

Yfirborðsbreytingar við Öskju

Askja | 13. ágúst 2023

Síðan landris hófst í Öskju fyrir um tveimur árum hafa …
Síðan landris hófst í Öskju fyrir um tveimur árum hafa landverðir, leiðsögumenn og aðrir sem eiga oft leið um svæðið verið beðnir um að fylgjast sérstaklega með yfirborðsbreytingum á svæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veður­stofa Íslands hef­ur fengið ábend­ingu um skamm­líf­an strók sem gæti verið til marks um aukna gufu­virkni í Báts­hrauni aust­an við Víti. Þá mæld­ist vatns­hiti í Víti 27 gráður eða um 9 gráðum hærri en hann hef­ur mælst áður í sum­ar.

Veður­stofa Íslands hef­ur fengið ábend­ingu um skamm­líf­an strók sem gæti verið til marks um aukna gufu­virkni í Báts­hrauni aust­an við Víti. Þá mæld­ist vatns­hiti í Víti 27 gráður eða um 9 gráðum hærri en hann hef­ur mælst áður í sum­ar.

Síðan landris hófst í Öskju fyr­ir um tveim­ur árum hafa land­verðir, leiðsögu­menn og aðrir sem eiga oft leið um svæðið verið beðnir um að fylgj­ast sér­stak­lega með yf­ir­borðsbreyt­ing­um á svæðinu. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Veður­stofu Íslands.

Óvissu­stig Al­manna­varna

Ekki mæl­ist auk­in skjálfta­virkni né auk­inn hraði á landrisi á svæðinu. Ferðafólki er ráðlagt frá því að baða sig í Víti og dvelja lang­dvöl­um á svæðinu og minnt á að óvissu­stig Al­manna­varna er í gildi. Ferðamönn­um er þá bent á að fylgj­ast vel með leiðbein­ing­um land­varða, sem all­ar eru unn­ar í sam­ráði við Al­mann­varna­deild Rík­is­lög­reglu­stjóra og Lög­reglu­stjór­ann á Norðaust­ur­landi.

Nátt­úru­vár­vakt Veður­stof­unn­ar fylg­ist með mæl­ing­um á svæðinu all­an sóla­hring­inn, og vís­inda­fólk og hagaðilar funda reglu­lega um stöðu mála. Starfs­fólk Veður­stof­unn­ar og Há­skóla Íslands verður á svæðinu í næstu viku til að gera ár­leg­ar mæl­ing­ar á af­lög­un og gasi. Niður­stöður þeirra mæl­inga nýt­ast til frek­ari túlk­unn­ar á þeim breyt­ing­um sem eiga sér nú stað í Öskju, að því er fram kem­ur í til­kynn­ing­unni.

mbl.is