Fara til mælinga í Öskju á morgun

Askja | 14. ágúst 2023

Fara til mælinga í Öskju á morgun

Teymi jarðvísindamanna heldur upp að Öskju á morgun til að framkvæma mælingar við eldstöðina. Vísindamennirnir munu meðal annars mæla hitastigi í Víti og gas á svæðinu.

Fara til mælinga í Öskju á morgun

Askja | 14. ágúst 2023

Hitastigið mældist 27 gráður í Víti.
Hitastigið mældist 27 gráður í Víti. mbl.is/Árni Sæberg

Teymi jarðvís­inda­manna held­ur upp að Öskju á morg­un til að fram­kvæma mæl­ing­ar við eld­stöðina. Vís­inda­menn­irn­ir munu meðal ann­ars mæla hita­stigi í Víti og gas á svæðinu.

Teymi jarðvís­inda­manna held­ur upp að Öskju á morg­un til að fram­kvæma mæl­ing­ar við eld­stöðina. Vís­inda­menn­irn­ir munu meðal ann­ars mæla hita­stigi í Víti og gas á svæðinu.

Þetta seg­ir Krist­ín Elísa Guðmunds­dótt­ir nátt­úru­vár­sér­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands. 

Rúv greindi frá því fyr­ir skömmu að brenni­steinsþef leggi nú upp úr Öskju. 

Krist­ín Elísa seg­ir eng­an gasmæli vera við eld­stöðina en að slík­ur mæl­ir verði með í för á morg­un.

Fundað á morg­un

Vatns­hiti í Víti hef­ur mælst 27 gráður, sem er um 9 gráðum hærra en mælst hef­ur áður í sum­ar. Þor­vald­ur Þórðar­son eld­fjalla­fræðing­ur sagði við mbl.is fyrr í dag að kvika væri mögu­lega á litlu dýpi.

„Þá er þetta sem við erum að tala um bara á leiðinni. Ef hit­inn í Víti er far­inn að hækka svona mikið þá þýðir það að það er kom­in kvika þarna inn miðað við hvernig land­breyt­ing­in hef­ur verið,“ sagði Þor­vald­ur.

Landris hófst í Öskju fyr­ir um tveim­ur árum. Að sögn Krist­ín­ar hef­ur skjálfta­virkni á svæðinu ekki auk­ist ný­lega en Veður­stof­an fylg­ist þó grannt með gangi mála.

Lang­tíma­eft­ir­lits­fund­ur verður hald­inn á morg­un þar sem meðal ann­ars verður farið yfir stöðuna í Öskju og á Reykja­nesi.

mbl.is