Fara yfir stöðu mála í dag

Askja | 16. ágúst 2023

Fara yfir stöðu mála í dag

Almannavarnir og aðrir viðbragðsaðilar munu halda reglubundinn fund vegna landrissins í Öskju. Þetta staðfestir Sólberg Svanur Bjarnason, deildarstjóri hjá almannavörnum, í samtali við mbl.is. 

Fara yfir stöðu mála í dag

Askja | 16. ágúst 2023

Vatnshitinn í Víti hef­ur mælst 27 gráður, sem er um …
Vatnshitinn í Víti hef­ur mælst 27 gráður, sem er um 9 gráðum hærra en mælst hef­ur áður í sum­ar. mbl.is/Sigurður Bogi

Al­manna­varn­ir og aðrir viðbragðsaðilar munu halda reglu­bund­inn fund vegna landriss­ins í Öskju. Þetta staðfest­ir Sól­berg Svan­ur Bjarna­son, deild­ar­stjóri hjá al­manna­vörn­um, í sam­tali við mbl.is. 

Al­manna­varn­ir og aðrir viðbragðsaðilar munu halda reglu­bund­inn fund vegna landriss­ins í Öskju. Þetta staðfest­ir Sól­berg Svan­ur Bjarna­son, deild­ar­stjóri hjá al­manna­vörn­um, í sam­tali við mbl.is. 

Rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Norður­landi eystra lýsti yfir óvissu­stigi á svæðinu í sept­em­ber árið 2021. Sól­berg seg­ir að síðan þá hafi verið haldn­ir reglu­leg­ir fund­ir. 

Á fund­in­um í dag verða meðal ann­ars full­trú­ar al­manna­varna, full­trú­ar Vatna­jök­ulsþjóðgarðar og full­trú­ar lög­r­eglu­stjór­ans á Norður­landi eystra. 

„Það hef­ur verið fundað reglu­lega um stöðu mála,“ seg­ir Sól­berg og bæt­ir við að síðasti fund­ur var hald­inn í júní áður en ferðamanna­tíma­bilið hófst við Öskju. Nú fer tíma­bil­inu síðan að ljúka. 

Hann seg­ir að fund­ur­inn sé ekki hald­inn sér­stak­lega í ljósi frétta af brenni­steinslykt­ar sem fund­ist á svæðinu, en vissu­lega verði það rætt á fund­in­um. 

Eng­in breyt­ing á virkn­inni

Sól­berg seg­ir að síðan landrisið hófst hafi staðan verið stöðug og eng­ar mæl­an­leg­ar breyt­ing­ar á virkn­inni. 

Teymi frá Veður­stof­unni held­ur upp að Öskju í dag til að koma fyr­ir gasmæl­um á svæðinu. Þá mun hóp­ur­inn mæla vatns­hita í Víti. Hit­inn hef­ur mælst 27 gráður, sem er um 9 gráðum hærra en mælst hef­ur áður í sum­ar.

Spurður hvort að fjar­skipta­sam­band á svæðinu verði til umræðu seg­ir Sól­berg að Askja sé langt upp á há­lendi. 

„Þar eru krefj­andi aðstæður fyr­ir fjar­skipti, bæði að koma þeim upp og í rekstr­ar­leg­um til­gangi,“ seg­ir Sól­berg og bæt­ir við að not­end­ur séu fáir. 

„Sú staða hef­ur verið lengi þekkt og ég held að all­ir viðbragðsaðilar og al­manna­varn­ir í sinni víðustu mynd eru meðvitaðir um. Hver og einn lít­ur til þeirr­ar sviðs ábyrgðar sem und­ir þá fell­ur með til­liti til þess hvað megi gera bet­ur í því sam­bandi. Við ger­um það líka – horf­um heilt yfir.“ 

mbl.is