Askja rís enn án afláts

Askja | 17. ágúst 2023

Askja rís enn án afláts

Land heldur áfram að rísa við Öskjuvatn og hallinn frá miðju vatnsins heldur áfram að aukast. Þetta gefa fyrstu niðurstöður yfirborðsmælingar við vatnið til kynna. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins fylgdu vísindamönnum að Öskju og Víti til árlegra mælinga í gær.

Askja rís enn án afláts

Askja | 17. ágúst 2023

Miðja landrissins virðist vera undir norðvesturhluta Öskjuvatns, hér fjær fyrir …
Miðja landrissins virðist vera undir norðvesturhluta Öskjuvatns, hér fjær fyrir miðri mynd, sem tekin var úr lofti síðdegis í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Land held­ur áfram að rísa við Öskju­vatn og hall­inn frá miðju vatns­ins held­ur áfram að aukast. Þetta gefa fyrstu niður­stöður yf­ir­borðsmæl­ing­ar við vatnið til kynna. Blaðamaður og ljós­mynd­ari Morg­un­blaðsins fylgdu vís­inda­mönn­um að Öskju og Víti til ár­legra mæl­inga í gær.

Land held­ur áfram að rísa við Öskju­vatn og hall­inn frá miðju vatns­ins held­ur áfram að aukast. Þetta gefa fyrstu niður­stöður yf­ir­borðsmæl­ing­ar við vatnið til kynna. Blaðamaður og ljós­mynd­ari Morg­un­blaðsins fylgdu vís­inda­mönn­um að Öskju og Víti til ár­legra mæl­inga í gær.

Veður­stofu Íslands hafa borist ábend­ing­ar um yf­ir­borðsbreyt­ing­ar við vatnið og ný­lega um skamm­líf­an strók sem gæti verið merki um aukna gufu­virkni við Víti.

Margt geti spilað inn í

Vís­inda­menn Veður­stof­unn­ar gáfu þó lítið fyr­ir þær skýr­ing­ar niðri við Víti í gær og sögðu margt geta spilað inn í. Mældu þeir þar landris og halla, jarðgas og tóku sýni úr Víti. Há­skóli Íslands fær sýn­in til rann­sókn­ar síðar í vik­unni og kem­ur þá í ljós hvort sam­setn­ing jarðgasa við Víti hafi breyst.

Þensla hef­ur einnig mælst við fleiri eld­stöðvar. Niður­stöður nýrra mæl­inga við Heklu sýna meiri þenslu, sem gef­ur í skyn að næsta gos verði öfl­ugra en síðustu gos. Land er einnig tekið að rísa í Torfa­jök­ul­söskju.

Í Morg­un­blaðinu í dag er farið yfir þær eld­stöðvar þar sem skjálfta­virkni, landriss eða auk­ins jarðhita hef­ur orðið vart.

mbl.is