Næsta gos öflugra en þau síðustu

Hekla | 17. ágúst 2023

Næsta gos öflugra en þau síðustu

Hekla, eitt þekktasta og virkasta eldfjall Íslands, heldur áfram að þenjast út. Þetta sýna nýjar mælingar sem kynntar voru á vikulegum fundi Jarðvísindastofnunar í gær.

Næsta gos öflugra en þau síðustu

Hekla | 17. ágúst 2023

Hekla hefur þanist stöðugt út frá aldamótum, án þess þó …
Hekla hefur þanist stöðugt út frá aldamótum, án þess þó að gjósa. mbl.is/Árni Sæberg

Hekla, eitt þekkt­asta og virk­asta eld­fjall Íslands, held­ur áfram að þenj­ast út. Þetta sýna nýj­ar mæl­ing­ar sem kynnt­ar voru á viku­leg­um fundi Jarðvís­inda­stofn­un­ar í gær.

Hekla, eitt þekkt­asta og virk­asta eld­fjall Íslands, held­ur áfram að þenj­ast út. Þetta sýna nýj­ar mæl­ing­ar sem kynnt­ar voru á viku­leg­um fundi Jarðvís­inda­stofn­un­ar í gær.

Hall­dór Geirs­son jarðeðlis­fræðing­ur stýrði fund­in­um en hann seg­ir við Morg­un­blaðið að þensl­an gefi í skyn að næsta gos verði öfl­ugra en síðustu gos.

Seg­ir Hall­dór að Hekla hafi verið að þenj­ast út frá sein­asta gosi árið 2000.

Nefn­ir hann að eld­stöðin hafi á öld­um áður gosið á 50-100 ára fresti en eft­ir að stórt gos varð í Heklu árið 1947 hafi hún farið í „óvenju­leg­an ham“ og gosið oft­ar. Bæt­ir hann við að Heklugos hafi yf­ir­leitt stutt­an fyr­ir­vara.

Til­bú­in að gjósa frá ár­inu 2006

Páll Ein­ars­son jarðeðlis­fræðing­ur sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið árið 2021, að þensl­an hefði verið orðin jafn mik­il um árið 2006 og hún var áður en síðast gaus. Síðan má segja að fjallið hafi verið til­búið í gos.

„Hekla er ekki vön að gefa merki um aðsteðjandi gos fyrr en mjög skömmu áður en það brýst út. Það ger­ir hana svo vara­sama,“ sagði Páll.

Nán­ar er fjallað um all­ar þær eld­stöðvar lands­ins, sem bært hafa á sér að und­an­förnu, í Morg­un­blaðinu í dag.

mbl.is