Þessar eldstöðvar sýna merki um virkni

Katla | 17. ágúst 2023

Þessar eldstöðvar sýna merki um virkni

Veðurstofa Íslands lýsti yfir goslokum við Litla-Hrút í gær, tíu dögum eftir að virkni mældist í gígnum. Landsmenn hafa aftur á móti enn ekki fengið frið fyrir jarðhræringum.

Þessar eldstöðvar sýna merki um virkni

Katla | 17. ágúst 2023

Veður­stofa Íslands lýsti yfir gos­lok­um við Litla-Hrút í gær, tíu dög­um eft­ir að virkni mæld­ist í gígn­um. Lands­menn hafa aft­ur á móti enn ekki fengið frið fyr­ir jarðhrær­ing­um.

Veður­stofa Íslands lýsti yfir gos­lok­um við Litla-Hrút í gær, tíu dög­um eft­ir að virkni mæld­ist í gígn­um. Lands­menn hafa aft­ur á móti enn ekki fengið frið fyr­ir jarðhrær­ing­um.

Landris mæl­ist við Öskju, Torfa­jök­ul, Grím­svötn og Bárðarbungu. Jörð hef­ur skolfið við Skjald­breið, Kötlu, Hofs­jök­ul og Eld­ey síðustu miss­eri og enn þenst Hekla út og býr sig hægt og ró­lega und­ir næsta gos.

Smella má á kortið hér að ofan til að stækka það og sjá þær eld­stöðvar sem látið hafa á sér bæra að und­an­förnu.

Torfa­jök­ulsa­skj­an virk eld­stöð

Veður­stof­an til­kynnti í gær að landris hefði mælst í Torfa­jök­ul­söskju. Land hef­ur risið um fjóra senti­metra á svæðinu á tveim­ur mánuðum og kvika virðist vera að safn­ast fyr­ir og valda þenslu í eld­stöðinni. „Eld­stöðin er að minna á sig og seg­ir: Ég er virk eld­stöð og ég get farið að gjósa þegar mér dett­ur í hug,“ sagði Þor­vald­ur Þórðar­son eld­fjalla­fræðing­ur við mbl.is í gær.

Óvissu­stig er í gildi við Öskju en landris þar frá ár­inu 2021 nem­ur um 70 senti­metr­um. Á fundi lög­regl­unn­ar á Norður­landi eystra í gær var ekki tal­in þörf á frek­ari aðgerðum eða aðgangs­stýr­ing­um að svo stöddu. Landris hef­ur einnig mælst við Bárðarbungu en eng­ar sterk­ar vís­bend­ing­ar eru um gosund­ir­bún­ing.

Hekla að þenj­ast út

Á viku­leg­um fundi Jarðvís­inda­stofn­un­ar í gær voru nýj­ar jarðhalla­mæl­ing­ar á Heklu kynnt­ar sem sýndu fram á að fjallið væri enn að þenj­ast út.

Hall­dór Geirs­son jarðeðlis­fræðing­ur stýrði fund­in­um en hann seg­ir við Morg­un­blaðið að þensl­an gefi í skyn að næsta gos verði öfl­ugra en síðustu gos. Seg­ir Hall­dór að Hekla hafi verið að þenj­ast út frá sein­asta gosi árið 2000.

Eld­stöðin hafi á öld­um áður gosið á 50-100 ára fresti en eft­ir að stórt gos varð í Heklu árið 1947 hafi hún farið í „óvenju­leg­an ham“ og gosið oft­ar. Bæt­ir hann við að Heklugos hafi yf­ir­leitt stutt­an fyr­ir­vara.

mbl.is