Mestar líkur á mannskaða við Öskju

Askja | 18. ágúst 2023

Mestar líkur á mannskaða við Öskju

„Það eru öll merki þess efnis að Askja sé að sigla í eitthvað stórt,“ segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur og jarðefnafræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. 

Mestar líkur á mannskaða við Öskju

Askja | 18. ágúst 2023

Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir líklegt að Askja muni gjósa á …
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir líklegt að Askja muni gjósa á árinu. Samsett mynd

„Það eru öll merki þess efn­is að Askja sé að sigla í eitt­hvað stórt,“ seg­ir Ármann Hösk­ulds­son, eld­fjalla­fræðing­ur og jarðefna­fræðing­ur við Jarðvís­inda­stofn­un Há­skóla Íslands. 

„Það eru öll merki þess efn­is að Askja sé að sigla í eitt­hvað stórt,“ seg­ir Ármann Hösk­ulds­son, eld­fjalla­fræðing­ur og jarðefna­fræðing­ur við Jarðvís­inda­stofn­un Há­skóla Íslands. 

Seg­ir hann all­ar mæl­ing­ar gefa slíkt til kynna. „Það er langlík­leg­ast að Askja gjósi á ár­inu ef hún fer ekki að hægja á sér. Hún er að und­ir­búa sig og er kom­in á það þroska­stig að ég held að það sé mjög lík­legt,“ seg­ir Ármann. 

Eins og fram hef­ur komið er víða órói í kerf­inu. Órói er í kring­um Bárðarbungu, Kötlu, Torfa­jök­ul, Hofs­jök­ul, Öskju og fleiri svæði. Að sögn Ármanns er lík­lega sýnu verst ef Askja gýs miðað við tæki­færi til flótta en byggð geti helst verið und­ir ef Öræfa­jök­ull fer af stað.

Vont ef gýs á ferðamanna­tíma

„Verst er að fá þetta á ferðamanna­tíma. Sér­stak­lega á Öskju­svæðinu þar sem langt er í var,“ seg­ir Ármann.  

„Helst þurf­um við að horfa á flóðbylgj­urn­ar. Ef fyr­ir­boðinn í Öskju er tveir til þrír klukku­tím­ar, þá eru lík­ur á því að fleiri hundruð manns séu á svæðinu sem kom­ast ekki und­an. Ef þetta er á ferðamanna­tíma þá get­ur orðið mik­ill mannskaði. Frá bíla­stæðinu og að Öskju er klukku­stund­ar gang­ur en flóðbylgj­an fer mjög hratt yfir,“ seg­ir Ármann. 

Við Öskju er ekk­ert síma­sam­band og því gæti sömu­leiðis verið erfitt að koma neyðar­skila­boðum til þeirra sem á svæðinu eru.

Ekkert símasamband er við Öskju.
Ekk­ert síma­sam­band er við Öskju. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Hleyp­ur ekki frá gjóskuflóði 

Hann seg­ir mest­ar lík­ur á sprengigosi fari Askja af stað. „Þá ertu kom­inn með gjósku­fall og gjóskuflóð. Þau geta náð í 10-20 kíló­metra frá upp­tök­um og þú hleyp­ur ekk­ert frá því. Þau fara á allt að hundrað kíló­metra hraða á klukku­stund. En von­andi verður sæmi­leg­ur fyr­ir­vari þannig að búið verði að tæma þessi svæði þegar þar að kem­ur,“ seg­ir Ármann.

mbl.is