Sagðir hafa grandað rússneskri sprengjuflugvél

Úkraínustríðið | 21. ágúst 2023

Sagðir hafa grandað rússneskri sprengjuflugvél

Talið er að Úkraínumönnum hafi tekist að gjöreyðileggja að minnsta kosti eina rússneska sprengjuflugvél af gerðinni Tupolev TU-22M3 á rússneska Soltsy-herflugvellinum nærri borginni Novgorod í norðvesturhluta Rússlands, ekki ýkjalangt frá eistnesku landamærunum.

Sagðir hafa grandað rússneskri sprengjuflugvél

Úkraínustríðið | 21. ágúst 2023

Tupolev TU-22M3-sprengjuflugvél í ljósum logum á Soltsy-herflugvellinum, skammt frá Novgorod …
Tupolev TU-22M3-sprengjuflugvél í ljósum logum á Soltsy-herflugvellinum, skammt frá Novgorod í Rússlandi, á laugardaginn. Ljósmynd/Telegram

Talið er að Úkraínu­mönn­um hafi tek­ist að gjör­eyðileggja að minnsta kosti eina rúss­neska sprengjuflug­vél af gerðinni Tupo­lev TU-22M3 á rúss­neska Soltsy-herflug­vell­in­um nærri borg­inni Novg­orod í norðvest­ur­hluta Rúss­lands, ekki ýkjalangt frá eist­nesku landa­mær­un­um.

Talið er að Úkraínu­mönn­um hafi tek­ist að gjör­eyðileggja að minnsta kosti eina rúss­neska sprengjuflug­vél af gerðinni Tupo­lev TU-22M3 á rúss­neska Soltsy-herflug­vell­in­um nærri borg­inni Novg­orod í norðvest­ur­hluta Rúss­lands, ekki ýkjalangt frá eist­nesku landa­mær­un­um.

Staðfesti rúss­neska varn­ar­málaráðuneytið á sam­fé­lags­miðlin­um Tel­egram á laug­ar­dag­inn að árás hefði verið gerð á herflug­völl­inn en tjón ekki orðið að ráði. Er fram leið birtu rúss­nesk­ir her­mála­blogg­ar­ar hins veg­ar mynd­ir sem sýna brenn­andi flak sprengjuflug­vél­ar af áður­nefndri gerð.

TU-22M3-vélarnar eru gamlar í hettunni en hafa verið uppfærðar og …
TU-22M3-vél­arn­ar eru gaml­ar í hett­unni en hafa verið upp­færðar og bera nú flug­skeyti sem þær skjóta á skot­mörk í Úkraínu. Ljós­mynd/​Rúss­neska varn­ar­málaráðuneytið

Þá heyr­ist því fleygt að um tvær flug­vél­ar gæti hafa verið að ræða sem grandað var á Soltsy-vell­in­um en meðal þeirra sem greina frá árás­inni er banda­ríska stríðsrann­sókn­ar­stofn­un­in Institu­te for the Stu­dy of War sem hef­ur það eft­ir rúss­nesk­um heim­ild­ar­mönn­um að Rúss­ar hafi orðið fyr­ir tjóni í árás­inni.

Stór­sig­ur ef rétt reyn­ist

TU-22M3 eru í grunn­inn gaml­ar sprengjuflug­vél­ar sem Rúss­ar hafa upp­fært og hafa verið notaðar til að skjóta flug­skeyt­um á úkraínsk skot­mörk síðan inn­rás Rússa hófst.

Álíta grein­end­ur og aðrir sér­fróðir það stór­sig­ur fyr­ir úkraínska her­inn að hon­um hafi auðnast að ráðast á skot­mark lengst inni í Rússlandi og granda því. Yfir það dreg­ur meðal annarra úkraínski her­mála­blogg­ar­inn Júrí Bútú­sov ekki fjöður í skrif­um sín­um á Tel­egram.

Rúss­nesku skrif­ar­arn­ir liggja þarlend­um her­mála­yf­ir­völd­um hins veg­ar á hálsi fyr­ir að vera værukær og láta sprengjuflug­vél­ar standa óvarðar utan flug­skýl­is á herflug­völl­um lands­ins. Einn þess­ara skrif­ara, sem kall­ar sig Grey Zone, tel­ur leyni­leg­an úkraínsk­an and­spyrnu­hóp hafa gert árás­ina. Hóp sem starfi inn­an rúss­nesku landa­mær­anna og hafi verið í stakk bú­inn til að senda árás­ar­dróna að Soltsy-flug­vell­in­um.

Rússneski hermálabloggarinn Grey Zone skrifar um árásina og gagnrýnir rússneska …
Rúss­neski her­mála­blogg­ar­inn Grey Zone skrif­ar um árás­ina og gagn­rýn­ir rúss­neska her­inn fyr­ir sof­anda­hátt. Skjá­skot/​Tel­egram

The Bar­ents Obser­ver

Newsweek

NRK

mbl.is