Engar breytingar við Öskju og Víti

Askja | 23. ágúst 2023

Engar breytingar við Öskju og Víti

Engar sjáanlegar breytingar eru á landslagi við í kringum Öskju og Víti og niðurstöður mælinga á hitastigi og sýrustigi benda ekki til þess að jarðhitavirkni hafi verið á svæðinu. 

Engar breytingar við Öskju og Víti

Askja | 23. ágúst 2023

Engar sýnilegar breytingar hafa orðið á jarðhitavirkni kringum Öskju og …
Engar sýnilegar breytingar hafa orðið á jarðhitavirkni kringum Öskju og Víti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eng­ar sjá­an­leg­ar breyt­ing­ar eru á lands­lagi við í kring­um Öskju og Víti og niður­stöður mæl­inga á hita­stigi og sýru­stigi benda ekki til þess að jarðhita­virkni hafi verið á svæðinu. 

Eng­ar sjá­an­leg­ar breyt­ing­ar eru á lands­lagi við í kring­um Öskju og Víti og niður­stöður mæl­inga á hita­stigi og sýru­stigi benda ekki til þess að jarðhita­virkni hafi verið á svæðinu. 

Þetta eru fyrstu niður­stöður mæl­inga sem gerðar voru í síðustu viku en blaðamaður mbl.is og ljós­mynd­ari fengu að fylgja vís­inda­mönn­um Veður­stofu Íslands í leiðangr­in­um. 

Melissa Anne Pfeffer gerði mælingar við Víti í síðustu viku.
Mel­issa Anne Pf­ef­fer gerði mæl­ing­ar við Víti í síðustu viku. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Um er að ræða ár­leg­ar mæl­ing­ar sem gerðar eru við Víti og Öskju­vatn en Dr. Mel­issa Anne Pf­ef­fer og Dr. Michelle Maree Parks fóru fyr­ir ferðinni.

Til­kynn­ing­in barst þann 12. ág­úst um gufustrók sem sást við jaðar Báts­hrauns. Telja vís­inda­menn að um hafi verið að ræða ryk vegna grjót­hruns úr brött­um hlíðum öskj­unn­ar.

Michelle Maree Parks að störfum við Víti.
Michelle Maree Parks að störf­um við Víti. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Eng­ar breyt­ing­ar á staðsetn­ingu

Yf­ir­borðsmæl­ing­ar voru einnig gerðar við Öskju í síðustu viku en það var Erik Sturkell, pró­fess­or við há­skól­ann í Gauta­borg, sem fram­kvæmdi þær. Frey­steinn Sig­munds­son, jarðeðlis­fræðing­ur við Há­skóla Íslands, tek­ur við kefl­inu af hon­um í þess­ari viku. 

Halla­mæl­ing­ar síðustu viku sýna eng­ar breyt­ing­ar á staðsetn­ingu landris­ins og hef­ur sama þróun, sem hófst árið 2021, haldið áfram líkt og mbl.is greindi frá í síðustu viku.

Erik Sturkell við mælingar í Bátshrauni.
Erik Sturkell við mæl­ing­ar í Báts­hrauni. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is